Sunnudagur 18. nóvember 2007 / 18:17 / Bruni í Stærra-Árskógi

Pabbi hringdi í mig í dag til að segja mér frá brunanum sem varð heima á ströndinni í gær. Guggi í Stærra-Skógi missti um 200 skepnur.
Það er alltaf leiðinlegt að heyra svona fréttir, en þær snerta mann enþá meira þegar þær koma úr heimabyggð. Guggi tók í notkun fyrir nokkrum árum glænýtt fjós, sem kallast víst "tæknifjós" á bændamáli, að mér skilst. Þar var allt til alls og aðbúnaður hinn besti. Mikið grín var gert af Gugga á þorrablóti hérna um árið þar sem talað var um að núna gæti hann legið með tærnar uppí loftið og látið vélarnar sjá um allt.
Í gær var stormur á Norðurlandinu. Hríðarbylur og varla sást á milli stikna á aðalveginum. Mamma og pabbi voru að keyra til Akureyrar um það leyti sem þetta gerðist og mættu tveimur slökkviliðsbílum frá Akureyri. Þeir komust því miður ekki hratt yfir sökum veðurs. Þegar óhagstæð vindátt er og eldur kviknar þá er víst lítið annað hægt að gera en að þakka fyrir að ekki varð manntjón.
Vonandi fær Guggi þetta bætt að fullu frá tryggingunum. Veit ekki hvort það er viðeigandi að votta samúð sína, en ég ætla samt sem áður að gera það.
bruni.jpg
Þetta hefur vafalaust verið ljót aðkoma og óska ég engum þess að lenda í svona hremmingum. Ævistarfið hans fokið útum gluggann. En það þýðir víst lítið að hugsa um það sem var, núna er bara að horfa björtum augum fram á við og líta á þetta sem tækifæri til nýs upphafs.


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.

/ Álit

Sylvía Dögg:

Hæ skvís:)
maður fær bara hroll að hugsa til þessa bruna... greyið skeppnurnar sem voru bundnar og komust ekki neitt og urðu eldinum að bráð :( úff... bara ógeðslegt! og svo tjónið... alveg rosalegt sko...

sjáumst kanski á morgun skvísa mín... knúsý knús;)

19.11.07 00:27


mamma:

Í svona hátæknifjósi er kýrnar ekki bundnar á bása, hinsvega er það ekki svo tæknilegt að þær geti sjálfar opnað hurðina, og kannski ekki æskilegt. En þetta er allt mjög sorglegt og hugur okkar allra hjá þeim.

19.11.07 11:33


Guðrún:

Hræðilegar fréttir og það á sannarlega við að votta honum samúð sína, því eins og haft var eftir honum í morgunblaðinu í morgunn: þetta voru samstarfsfélagar mínu og vinir og var ég búin að gefa þeim öllum nöfn.
Hræðilegur missir fyrir Gugga og hræðilegt veður til að eiga við þetta.

19.11.07 15:43


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín