Þriðjudagur 30. október 2007 / 14:09 / óheppin

Já óheppnin virðist elta mig á röndum þessa dagana. Eftir að ég bloggaði á laugardaginn fór ég á bílnum mínum í Kringluna (skömm að segja frá því þar sem ég bý virkilega nálægt) og þá kom rooosalega vond lykt af Rúfus og ég vissi strax að þetta hlyti að vera kúplingin þar sem hún var komin mjjjööög ofarlega. Jæja. Ég brunaði með kaggann til Munda bró sem staðfesti grun minn. Kúplingin farin og hann sagði mér að keyra Rúfus sem minnst. Síðan sló mér eitthvað niður á laugardagskvöldið og búin að vera hálf slöpp síðan. Fór reyndar út að skokka í gær með Brúnó (sem er riiisastór Doberman hundur, dökk brúnn og ótrúlega flottur. Kraftmikill með meiru svo ég fékk strengi eftir fyrsta skokkið með hann! Algjör snillingur) Hanna ferðast s.s. núna um með strætó um borgina, jú eða rölti/skokka milli staða. Bootcamp að byrja aftur í dag. Hlakka til, en kvíði líka fyrir þar sem ég er enþá með dúndrandi hausverk, hálsbólgu og ryksugaði íbúðina áðan í svitakófi. Enn ég ætla ekki að missa plássið þannig að það er eins gott að láta sjá sig :)
Jæja. Ætla að enda þetta blogg á myndum af Nick sem ég fékk á heimasíðunni hjá Kollu sem á hann núna. Takk Kolla!
------
nickmarkus.jpg
Markús og Nick eru greinilega góðir vinir
------
beauty.jpg
Hr.fallegur
-----
hr.virdulegur.jpg
Sakna hans - flottasti töffarinn


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / myndablogg. Þar eru 51 færslur.

/ Álit

Kolla:

Flott síða hjá þér Jóhanna
Nick saknar þín líka, en hann hefur það mjög gott.
Fórum út í snjóinn í gær, í hálfgerðri hríð, og hann fílaði það sko í botn!

31.10.07 12:35


Karen Björg besta frænka:

váááááá ég sakna hans líka hann var besti töffari sem ég þekki (og ég þekki skal ég segja þér þó nokkuð marga ;) en allavega ég sakna þín ekkert smá mikið besta frænka og við sjáumst sem fyrst.....

koss og knús karen björg

01.11.07 18:39


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín