Miðvikudagur 10. október 2007 / 17:25 / Norðurferð - myndir!

Haldiði að kella hafi ekki ákveðið að skella sér norður? Og sú ákvörðun var tekin á svona 5 mín, pakkað ofaní tösku, brunað útá völl og hlaupið inní vél sem var um það bil að lokast. Ljúf var lendingin á Akureyrarvelli, sem og pylsan og maltið sem pabbi gaf mér í Lindinni ;)
Það var svo


gott að komast heim. Hauganesið klikkar ekki. Laugardagskvöldið fór í videogláp með Ásdísi - takk fyrir gott kvöld Ásdís mín!
Heima sat ég yfir bókum, passaði Emblu, fór út að labba með Pílu og Emblu, kíkti í heimsóknir (leiðinlegt að hafa misst af þér Aníka) Baddý systir kom heim frá Skotlandi á sunnudeginum og færði mér bol og gloss - danke danke.
Vá - þetta blogg er að breytast í einhverja Óskars-verðlauna þakkarræðu! Hehe
Hætti núna! :D
Það var nú samt ágætt að komast aftur suður. Heim til Jóa míns sem var víst orðinn frekar einmanna án mín. Gott að vita að maður er mikilvægur ;)
Síðan er hugsanlega annað ferðalag í næstu viku! En það er efni í annað blogg þegar þar að kemur.
Ætla að setja inn nokkrar myndir frá því um helgina. Síðan verð ég nú að fara að gera eitthvað í þessari myndasíðu minni hérna á netinu... geri það við tækifæri.
-----
embla%20004.jpg
Það var frekar jólalegt á Hauganesinu á laugardeginum þegar ég kom.
----
nor%F0urfer%F0%20%ED%20okt%20004.jpg
Embla stakk af undir baðherbergisinnréttinguna meðan ég tannburstaði! Var nú bara sátt þar hehe - Algjör rúsína.
----
nor%F0urfer%F0%20%ED%20okt%20010.jpg
Sæta fjölsk... nei nei nei, Þorsteinn og Helga með Emblu og Unni Birtu litlu systrum Þorsteins :)
---
nor%F0urfer%F0%20%ED%20okt%20014.jpg
Ég og Júnía uppáhaldið mitt :P
---
nor%F0urfer%F0%20%ED%20okt%20049.jpg
Fékk svona líka innilegan koss frá Degi mínum ;)
---
Takk fyrir frábæra samveru fyrir norðan allir! Sjáumst! :D

Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / myndablogg. Þar eru 51 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.

/ Álit

Ásdís:

Takk sömuleiðis fyrir fínt kvöld:)

12.10.07 11:51


Helga Kr.:

Sæl Jóhanna!
Ég kíki alltaf reglulega hér inn - gaman að fylgjast með þér...og lesa skemmtilegt blogg :)
Kveðja frá Grenó - Helga Kr.

15.10.07 16:46


Aníka:

Jamm, bömmer að missa af þér líka :D

en þú nærð mér næst, ég lofa! :D

22.10.07 12:21


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín