Föstudagur 05. október 2007 / 11:24 / Hann sigldi útum höfin blá í sautján ár...
Ég er búin að hafa fullt af ástæðum til að blogga undanfarið, en hef ekki ennþá "krotað" einn einasta staf hingað inn. Kannski engin furða þar sem vikan einkenndist af gubbupest. Ældi í þrjá daga (byrjaði reyndar með þynnku, en þynnkan var ekki 3ja daga samt sem áður!)
Baddý systir var hjá mér og eyddi hún eiginlega mun meiri tíma með Jóa heldur en mér hehe. Ég var annað hvort ekki heima, sofandi eða ælandi. Ætlaði að skutla henni og Helgu til Keflavíkur á þriðjudagsnóttina, en ældi á miðnætti þannig að Jói bjargaði mér/þeim ;)
Tímaleysið virðist eitthvað vera að hrjá mig þessa dagana. Eða kannski maður ætti ekki að kvarta undan tímaleysi, eiginlega frekar skipulagsleysi og leti á að skipuleggja sig. Skrapp til Jóhanns Valdimars í fyrradag og það var virkilega gaman að hitta hann. Spjölluðum um "gömlu" góðu dagana heima á Nesinu og það sem við erum búin að bardúsa sl 5 ár þar sem við sáumst síðast þegar ég var 17 ára og hann 19! Nóg að tala um.
Skrapp í sund á miðvikudagskvöldið. Kíkti í Laugardalslaugina og það var bara helv. fínt.
Fór í handsnyrtingu til Lísbetar í gærmorgun. Good times :) Er búin að fara í vax á löppunum hjá henni áður, og er að fara í brazelískt-vax hjá henni í næstu viku!! Íííkk spennandi hehe. Síðan vorum við Lísbet með smá svona girls-day-out. Röltum Laugarveginn og kíktum í nokkrar búðir. Sá óóógeðslega flott stígvél í Spútnik eeeenn fjárhagurinn leyfir ekki allt :( Er líka enþá með hugann fastann við krumpu-stígvél sem ég sá í Focus-skóm um daginn. Kaupi þá á endanum. Its meant to be! Eftir röltið, rúnt og mikið mikið spjall fórum við út að borða á Ruby Tuesday. Ohh þetta var svo æðislegur dagur. Takk Lísbet mín!
Í dag er svo vísindaferð. Trúiði því? Þetta er alveg ótrúlega þétt dagskrá. Vísindaferð aðra hverja helgi, afmæli hjá Lísbet á morgun og próf í Inngang að Upp.og Mennt. á miðvikudaginn! Eins gott að ég sé stillt um helgina ;)
Annars er bara sama í gangi núna og við síðustu færslu. Endalaus hamingja þó að óþolinmæðin sé alveg að drepa mig. Þoli ekki að bíða eftir að hlutirnir gerist! Alveg ömurlegt... Eenn.. eins og mamma segir nú svo oft við mig: Góðir hlutir gerast hægt! Verð bara að hlusta á mömmuna í hausnum á mér :P
Hamingjusama-Hanna kveður úr rigningunni (Núna er eins gott að ég á flottu bláu stígvélin sem Dagný sys gaf mér í afmælisgjöf!)
p.s. Lísbet, til hamingju með afmælið 2.okt! :D
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
þetta hljómar allt mjög skemmtilega :D
ég segi bara gangi þér vel í brasilíska!! fúff, mér finnst nógu ógeðslega vont að fara í bara upp að hnjám!! :)
08.10.07 14:05



