Mánudagur 22. október 2007 / 13:33 / Gott er að eiga góða að

Sandra og Sverrir buðu mér uppí bústað á laugardaginn. Foreldrar Sverris eiga s.s. bústað svona 15mín frá Laugavatni í sumarbústaðabyggð. Þetta var svo óóóótrúlega sweet helgi að orð fá því ekki lýst. Fæ þeim seint full þakkað fyrir þessa ferð. Góður matur, góður félagsskapur, góður heitapottur og gott næði til að læra (ekkert msn! hihi)... hvað meira getur maður beðið um?
Sé fram á mikla vinnu í skólanum næstu vikurnar. Verkefnaskil og ritgerðarskil á föstudaginn næsta og tveir fyrirlestrar í næstu viku. Jej! Allt saman í hópavinnu sem er reyndar fínt, er búin að koma mér í góða hópa :)
Áttaði mig líka á því að ég er ömurleg í borðtennis. Fór í borðtennis uppi í H.R. í gær og skít-tapaði. Fékk síðan borðtenniskúluna í hálsinn og þá sagði ég bara hingað og ekki lengra og lagði borðtennis-skónna á hilluna.
Ég er orðin þvílíkt metnaðarfull í hundaskokkinu og fjárfesti í forlátum taum fyrir hundana sem ég er að fara með. Taumur sem ég kræki utan um mig og síðan í hundinn. Það er svakalega hentugt því þá get ég skokkað með hendurnar frjálsar og hundurinn fær nægilega mikið pláss til að skokka allt í kringum mig. Snilld. Núna þarf ég bara að kaupa mér nýja hlaupaskó - ætla að fara í það í dag eða morgun ef ég hef tíma.
Rigning í Reykjavík í dag - kemur á óvart?
Læt þetta verða lokaorð dagsins. Set inn myndir þegar ég kemst á aðeins hraðvirkara net - ekki alveg að gera sig hérna í skólanum.


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

freyja:

Þú ert svo dugleg elskan mín.... orðin pró hundaskokkari.... ég ætti kannski líka að gera þetta á Akureyri, ekki nenni ég með Fífu út ...

Hafðu það voða gott ljúfan mín ;)

22.10.07 22:15


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín