Þriðjudagur 16. október 2007 / 12:07 / gömul frétt

Ég var að skoða bloggið mitt frá því á síðasta ári því ég vissi að þar leyndist mynd af okkur Þorsteini Inga frænda. Þurfti ég að scrolla yfir nokkrar færslur til að finna hana, og rakst þá á þessa hérna færslu síðan ég var úti í Kaliforníu. Verð nú að viðurkenna....


..að núna, rúmlega ári seinna er ég enþá sömu skoðunar. Sumt breytist greinilega seint ;)
Hérna í borginni er matarræðið hinsvegar ekki uppá sitt besta. Við Jói reynum þó að vera dugleg að elda, en oftar en ekki er einfaldlega fljótlegra og auðveldara að kaupa eitthvað sukk útí búð. Pabbi fiskar þó handa okkur í matinn og reyni ég að hafa fisk amk 1-2x í viku. Mamma hans Jóa sendi okkur líka gríðarlegt magn af hakki (Takk Margrét!) og var það fínasta búbót.
Þar sem námsmenn eru fátækir, þá hef ég ekki enþá fjárfest í korti í ræktina. Er að bíða eftir að vinna í lottóinu (en kaupi samt aldrei miða, frekar vonlaus bið) þannig að ég auglýsti á hundaspjallinu eftir einhverjum fjörugum ferfætlingi að taka með í göngutúra og skokkferðir. Það var ekki að spyrja að því, fyrr en varði var pósthólfið mitt þar fullt af skilaboðum um hunda sem voru tilbúnir að stytta mér stundir í göngutúrum. Ég fór í gær og hitti þrjá hressa hunda og það vildi svo skemmtilega til að tveir af þeim eru Schnauzerar og einn var Rottweiler. (föðursystir hans Módjós hans Bjössa Kobba á Grenivík). Í dag ætla ég svo að hitta einhverja aðra hunda. Oh þetta er svo gaman. Fór einmitt með Palla vini mínum á labbið um daginn með Krumma hundinn hans. Það var ótrúlega gaman. Sakna Nicks svo mikið og dýrka að geta farið svona út að labba með hunda.
Jæja. Lærdómurinn kallar... eða meira svona öskrar á mig og best að fara að hysja uppum sig buxurnar og byrja að læra.
Love you all

Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín