Mánudagur 01. október 2007 / 00:49 / Daginn í dag, daginn í dag gerði drottinn guð:)
Vá hvað þessi helgi var viðburðarík og skemmtileg. Byrjaði reyndar frekar rólega með föstudags-þrifi og rólegheitum hérna heima fyrir. Skutlaði Jóa í vísindaferð kl hálf 5 og var einmanna húsmóðir eftir það, eða þangað til Palli félagi bjargaði mér um miðnætti og við fórum á rúntinn. Sóttum Jóa niður í bæ klukkan hálf 1, en þá var hann alveg búinn á því greyið hehe.
Ég ákvað...
...að vera stillt og prúð á föstudagskvöldið því á laugardeginum passaði ég litlu yndin mín, þau Katrín, Krissa og Jón Pétur.
Jón Pétur rassgatið mitt
Ég og Jón Pétur rosalega sæt saman :)
Katrín sæta skvís
Krissi er svo mikill gæji :D Aðal töffarinn - reyndar var hann lasinn greyið þannig að dagurinn hans fór í video-gláp ;)
---
Annars fékk ég svona næstum-því-heimsókn um daginn
Hann var nú voðalega sætur þegar hann krafsaði í gluggann hjá mér og mjálmaði. Ég hleypti honum nú samt ekki inn...
---
Í gærkvöldi fór ég út að borða með Hörpu og Sunnu sem voru staddar í borginni Við skelltum okkur á Hróa Hött og skemmtum okkur konunglega. Ég kíkti líka á Hóbbu, Eddu, Önnu Birnu og Fjólu og allann krakkaskarann þeirra. Rosalega gaman að hitta þau öll! Takk fyrir mig! :D
Þær eru bestar!
Það vantar bara Karen á þessa mynd :(
---
Á laugardaginn mætti Baddý systir á svæðið og skelltum við okkur út á lífið í gær. Það var alveg ótrúlega gaman. Helga og Karó vinkonur Baddýar komu með og við hittum Palla og Ottó niður í bæ. Þetta var algjört snilldarkvöld. Ekkert staða-ráp heldur bara dansað til að gleyma :D
Helgin mín var svo toppuð í dag þegar ég skellti mér á móturhjóla-rúnt!
Vá það var svo geeeðveikt! Takk Palli!
Tók mig líka svo afskaplega vel út með hjálminn eins og þessar myndir sýna. Hehehe
Svooo svöl!
Endalaust hörð :)
---
Skemmtileg helgi og gaman að hafa Baddý hérna hjá mér. Langar eiginlega bara að hún flytji hingað suður til mín :S Ennn svona er lífið og meðan ég hef Jóa þá er ég sátt ;)
Góða nótt elskurnar mínar....
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / Veður. Þar eru 2 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / skóli. Þar eru 20 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
Hanna hjálmurinn er að gera sig ;) .. hahahahaha
01.10.07 01:32
Já, þetta var snilldar kvöldverður ;) Sérstaklega þegar ónefndur aðili sullaði fanta út um allt..! :'D
En já, það vantar einmitt Karen á þessar myndir :/
En sjáumst bara :)
01.10.07 20:49
já ég vildi líka að ég byggji fyrir sunnan!! takk fyrir mig elskunar mínar, síðan kem ég aftur og stoppa í smá stund þegar ég kem að utan.... :D
01.10.07 21:05



