Sunnudagur 02. september 2007 / 22:51 / ó borg mín borg...

Það er ekki laust við að maður sé eins og nál í heystakki hérna í borginni. Þekkir voðalega fáa og allt frekar ókunnugt. Fór á háskólakynningu á föstudaginn og lýst rosalega vel á þetta. Erum 50 skráð í áfangann og held að þetta verði bara samheldinn hópur. Allavega er góð mæting í óvissuferðina á föstudaginn næsta ;)
Elli og Perla, vinir mínir sem búa á Kjalarnesinu, buðu mér í mat í gærkvöldi. Hamborgarahryggur og dýrindis meðlæti eins og það gerist best! Nammi namm. Takk fyrir! Alveg sjúklega gott. Litla sæta stelpan þeirra er algjör rúsína og ég fékk hreinlega ekki nóg af því að knúsa hana. Elli, þú veist í hvern þú hringir ef ykkur vantar pössun! :D
Við Jói fórum í verslunarferð í dag og ég keypti mér eitt stykki rúm. Þeir áttu ekki rúmmið sem ég vildi til í 140x200 þannig að ég keypti 160x200. Það þýðir að ég get sofið bæði langsum og þversum! Bara snilld hehe
Jóa tókst samt sem áður að týna veskinu sínu í IKEA og það er ekki enþá komið í leitarnar, því miður. Það var algjör bömmer og mjög svekkjandi. Allir að hafa augun opin ef þeir eiga leið um IKEA! Eftir verslunarferðina góðu fengum við íbúðina afhenta og fluttum inn. Komumst að því að ég á helmingi meira dót (drasl) heldur en Jói og íbúðin litla verður örugglega ekki lengi að fyllast.. Sérstaklega skógrindin þar sem ég á aðeins of marga skó! Thíhí.
Núna er bara eftir að fá rúmmið sent og setja það saman. Kaupa hitt og þetta sem vantar. Ef einhver þarf að losa sig við eldhúsborð og stóla þá erum við Jói game :)
Jæja best að fara að leggja sig svo maður verði sprækur fyrir fyrsta skóladaginn! Þarf víst að koma við í bóksölu stúdenta og kaupa mér stílabók svo maður mæti nú ekki allslaus í skólann.
Góða nótt sofið rótt í alla nótt
Guð geymi ykkur


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Helga Kr.:

Gangi þér vel !
Kv. frá Grens, hkh.

03.09.07 11:17


baddy systir:

enn spennandi tímar hjá þér. þú átt eftir að plumma þig vel þarna í borginni. djöfull líst mér vel á þetta rúm þitt, nóg pláss fyrir mig þegar ég kem í heimsókn til þín í borgina:D

04.09.07 00:38


Lísbet:

Tókstu fermingasjónvarpið mitt með suður ? hehe

04.09.07 17:22


Baddi Löll:

Jæja til hamingju með íbúðina, núna verður þú að halda bilað innflutningsparty

04.09.07 23:00


Dagný, Óli og Danni:

Þetta hljómar allt mjög vel, gaman að heyra hvað þú ert að bralla, þú stendur þig líka rosalega vel :)
*smúts*

05.09.07 09:20


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín