Laugardagur 22. september 2007 / 16:41 / Margt að Ugga - Margt í skugga
Vil byrja á því að þakka fyrir kommentin við síðustu færslu. Takk fyrir matinn Sandra, geeeðveikt góð pizza. Guðný; ég veit ekki hvenær ég á að hafa tíma til að koma til DK - þó mig langar gríðarlega að kíkja aftur á þig sæta mín! Svansa: Jábbs það er alltaf gaman, nema þegar maður á ekki penge fyrir nýjum fötum..Ginga: ég man ekki passwordið á síðuna þína! Viltu senda mér það í sms-i við tækifæri? ;) Takk.
Valla: Já ég er svo sannarlega að slá í gegn hérna hihi. Vísindaferð í gær og eintóm gleði. Verð að kíkja í ritarabókina á næsta fundi :P Þetta er rosalega skemmtilegt nám og mjög góður hópur. Alltaf góð mæting á djammið ;)
------
Fór í vísindaferð með skólanum í gær. Skruppum í Vífilfell og fengum ýmsar veitingar þar ;) Gríðarlegt stuð og síðan fór allur hópurinn niður á Deco að borða. Rosalega góður maturinn þarna, en eftir matinn stakk ég af í partý niður á Granda, og fór svo þaðan í annað partý í Breiðholtinu og að lokum á Players. Það var rosalega gaman í gær og þakka ég góðum kunningjum, vinum og sérstaklega einum sérstökum aðila sem gerði kvöldið ógleymanlegt ;) hihi.
-----
Ég fór með Arnari skólabróður mínum að versla á hann jakka núna fyrir ekki svo löngu. Það gekk hálf brösulega, en sagan er ekki um það reyndar. Sagan er um skó. Flottustu skó sem ég hef sé leeeengi. Ég hugsa varla um annað en hvað mig langar mikið í þessa skó. Og buxur, vantar reyndar líka buxur. En þessa skó VERÐ ég að eignast. Hvernig svosem ég ætla að fara að því, þeir kosta litlar 10þús.kr. :( (Megið styrkja mig með því að leggja inná reikninginn minn pening! hehe) Ég reyndar býst við að fá skuld endurgreidda fljótlega og líka smá útborgað þannig að kannski rætist draumurinn um kumpu-stígvélin í Focus.
------
Ég var að tala við Agostino, vin minn sem býr í Napoli á Ítalíu. Hann sendi mér þýðingu á O Sole Mio og þá áttaði ég mig á því að maður syngur þetta lag oft í gríni en textinn er gríðarlega fallegur.
Ætla að enda þessa færslu á textanum, þó hann sé nú ekkert sérstaklega vel gerður hihi... er á bókhlöðunni og þarf að drífa mig heim (verið að loka) en þegar ég kem heim ætla ég að setja inn myndir handa ykkur! :D
-------
My sun
-
What a beautiful thing is a day of sun,
calm is in the air after a storm!
The air is so fresh it seems already a holiday...
What a beautiful thing is a day of sun!
-
There is no other sun
more beautiful
my sun
is on your forehead
-
Sparkling are the glasses of your window,
a washlady sings and boast
while she wrings, hangsout and sings.
Sparkling are the glasses of your window!
-
There is no other sun
more beautiful
my sun
is on your forehead
-
When evening comes and the sun sets,
I am assailed by melanchony......
I will remain under your window,
until is evening and the sun sets.
-
There is no other sun
Þessi færsla er skráð í flokknum



