Fimmtudagur 06. september 2007 / 00:34 / In Da City
Þá er maður búinn að koma sér almennilega fyrir og ég er ekki frá því að okkur Jóa hafi tekist að gera þetta bara ansi kósý svona miðað við það sem við höfðum úr að moða ;) Ég er allavega ekki enþá komin með fataskáp - og veit eiginlega ekki alveg hvernig ég ætti að koma honum fyrir,.. en er það ekki seinni tíma vandamál? :P
Skólinn fer vel af stað og ég er nú þegar búin að lesa eina bók og glósa úr henni. Dugleg.
Á föstudaginn er svo nýnemadjamm sem maður verður víst að mæta í. Ég á að mæta í einhverju gulu og þegar ég lít yfir fataskápinn á ég ekki eina einustu gulu flík. Jæks. Ætli ég fái ekki einhversstaðar keyptan gallann hennar Umu Thurman úr KillBill myndunum? Djöfull væri það svalt.
Ég fór með Söndru Péturs á þriðjudaginn og gekk frá samningi um stuðningsfjölskyldu og liðveislu. Já ég ætla að vera með hana Katrínu mína í Stuðning í vetur og líka í liðveislu. Það verður bara fjör að endurnýja kynnin.
Skrifa meira seinna, þarf að koma mér í bólið svo maður vakni nú á skikkanlegum tíma. Ætla á bókhlöðuna í fyrramálið og svo tími eftir hádegi. Elli og Perla buðu mér líka í mat annað kvöld. Gott að eiga góða að. Síðan fæ ég heimsókn annað kvöld og hlakka ekkert smá til þess.
Hafið það gott
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur.
/ Álit
Þú verður bara að kaupa þér fataslár í IKEA, voða töff :)
06.09.07 23:58
Svanhildur:
Það er líka alveg hægt að nota stóra skápinn innst í horninu sem fataskáp í staðinn fyrir að nota hann til að geyma eldhúsdót.
11.09.07 18:33



