Mánudagur 10. september 2007 / 20:37 / Hver gengur þarna eftir Austurstræti, í ótrúlega rauðum kjól?
Ég fór í óvissuferð Padeia á föstudaginn og skemmti mér alveg óendanlega vel. Við byrjuðum í ratleik í Hljómskálagarðinum þar sem mitt lið sló í gegn í bjórþambi, stuðningsklappi og lagagerð ;)
Síðan héldum við í Hafnarfjörðinn þar sem við vorum með sal á leigu. Þar var borðaður kvöldmatur og farið í allskonar leiki og sprell. Ferðin endaði síðan niður í bæ á Deco sem er staðurinn okkar í ár. Jói sótti mig niður í bæ kl 3 um nóttina, enda var ég alveg búin á því í fótunum eftir að hafa verið á hælum síðan 5 um daginn. Við fengum okkur pizzu, horfðum á Family Guy og ég var nú fljót að sofna yfir því :)
Laugardagurinn var ansi hress. Fór aðallega í lærdóm, þrif og að bíða eftir Chris Cornell tónleikunum sem voru btw geðveikir. Við Jói vorum í stúku og því sá ég vel yfir svæðið (ef ég er niðri á gólfinu sé ég bara bakið á næsta manni...) Eftir tónleikana skelltum við okkur í Póker með Reyni og grænjaxlinn ég tók strákana í nefið!! :D Klárt mál að ég mun spila póker oftar ;)
Jæja. Önnur skólavikan byrjaði ágætlega. Næ svona nokkurnvegin að lesa yfir efnið fyrir tímana þannig að þá mæti vel undirbúin. Þjóðarbókhlaðan er líka mjög góður staður til að lesa á.
Ég er strax búin að eignast fína vini úr skólanum. Er með strák í bekk sem var með mér á hundanámskeiði hérna fyrir sunnan í vor. Hann heitir Birkir og er mjög fínn. Einnig er ég mikið með stelpu sem heitir Ólöf er frá Akranesi. Það eru ritgerðir og verkefni í öllum áföngum, og allt "hópastarf" eða tveir og tveir í hóp sem er reyndar alveg ágætt. Miklu betra en að vera þrír eða fleiri. Það er alveg vonlaust.
Í kvöld skelltum ég og Jói okkur svo á dansnámskeið!! Já mikið rétt. Ég og Jói fórum saman á Boogie Woogie dansnámskeið á vegum Háskólans. Þetta var rosalega gaman og ég ætla að halda áfram þó að Jói sé nú ekki eins viss. Fínasta líkamsrækt þar sem maður hoppar og skoppar um og dansar í fanginu á sætum strákum ;) Við mynduðum stóóórann hring þar sem strákarnir hreinlega gengu á milli stelpanna og dönsuðu. Sérstaklega gaman að dansa við stráka sem kunnu að dansa þennan dans. Þá var manni stjórnað og fleygt hingað og þangað. Gulli frændi - hvar ertu þegar ég þarf á þér að halda!! Þetta er alveg ekta fyrir hann...
Jæja. Læt þessar fréttir úr borginni nægja í bili.
Hafið það gott og fólki er nú alveg óhætt að hringja í mig ef það á leið um borgina ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
já Deco er fínn staður, tékkum á honum þegar ég kem í borgina um mánaðarmótin:D þessi ferð hefur greinilega verið snilld, og gott ef það er góð mæting - hér vantar stundum aðeins upp á það!
boogie woogie ...snilllld, það er svo gaman í dansi, held að so you think you can dance sé að tröllríða öllu þessa dagana:)
hlakka til að koma í heimsókn sys:D - later
13.09.07 10:48
Sigrún Erla bekkjarsys :):
Hæhæ sæta :)
bara að láta að ég er að fylgjast með þer..haha..neinei þú ert bara með svo skemmtileg blogg :)
og jú...auðvitað reynir maður að fylgjast með h-inu sínu :)
Vonandi fer maður nú að rekast á þig..langt síðan síðast :)
14.09.07 09:22



