Föstudagur 28. september 2007 / 10:57 / Ég.. er eins og ég er, hvernig á ég, að ver'einhver annar?!
Það er skrítið að búa í borginni. Þetta er eiginlega alveg eins og að búa í bíomynd. Þegar við Jói sitjum að kjafta inní stofu/eldhúsi/mínu herbergi þá heyrist sírenuvæl. Þegar ég fer að sofa, sofna ég við sírenuvæl og kjaftagang úr næsta húsi. Þegar ég vakna, er enþá sírenuvæl. Umferðin hérna er náttúrulega sér kapituli útaf fyrir sig, en ég er orðin frekar góð í akreina-sviginu.
Fór í mat í gær til Ella og Perlu. Namminamm.. fékk Ekta-fisks-saltfisk, kartöflur og smjör. Ohh þetta var svo gott! Takk fyrir mig elskurnar :)
Annars var ég að lesa bloggið hjá Birki bekkjarfélaga. Held að ég eigi líka nokkra svona vini. Maður þarf nefninlega að hugsa sinn gang reglulega, hvernig manni líður og hvernig maður vill láta sér líða.
Eftir að ég hætti með Þorsteini fór lífið í mikið rugl og vitleysu. Þeir sem þekkja mig vita að ég er frekar mikil reglu manneskja og vill hafa mitt á hreinu. Það er búið að taka mig nokkra mánuði að átta mig á því hvernig ÉG er, og hvernig ÉG vil vera. Ekki hvernig ég Á að vera eða aðrir VILJA að ég sé. Held hreinlega að það sé langt síðan ég hef verið jafn hamingjusöm og ánægð með sjálfa mig eins og ég er akkurat núna. Ég er líka búin að kynnast nýju fólki og upplifa margt skemmtilegt, skrítið og skondið. Djammað frá mér allt vit, en hef þó aldrei misst sjónar á sjálfri mér. Ég er enþá Jóhanna, Hanna Lína. Sveitastelpan frá Hauganesi :)
Núna er lífið komið í fastar skorður - eins og mér finnst best að hafa það. Fer í skólann á morgnanna, læri til 6 á daginn, stunda mína líkamsrækt, fer út að skokka því það hreinsar hugann (og lungun), skemmti mér með vinum mínum og fíflast með Jóa. Sef í litlu holunni minni og nýt þess að vera til. Nýt þess að vera ég sjálf.
Eina sem ég sakna er fjölskyldan og vinirnir fyrir norðan. Vildi óska að ég gæti farið oftar heim, heim á Hauganes. Langar í Brynjuís... ísrúnt með stelpunum! :D
Ég hef semsagt komist að þeirri niðurstöðu að ég er bara eins og ég er, þarf ekki að vera neitt öðruvísi og vil vera akkurat nákvæmlega svona (mínus nokkur kg .. er það ekki alltaf þannig hihi)
Ég finn það líka að þegar ég að ánægð með sjálfa mig og hvernig ég er, þá verð ég strax miklu meira aðlaðandi í augum annarra. Eignast fleiri vini og hef meira að segja fengið nokkur deit-tilboð :) Engar áhyggjur.. ég vandaði valið vel :P
Það er nefninlega algjör óþarfi að breyta sér eitthvað til að þóknast öðrum. Eiga vini sem að láta manni líða illa og gera hluti sem maður er ekki sáttur við. Það er enginn heimsendir að segja Nei við einhvern eða þó að einhver fíli mann ekki. Maður kynnist svo mörgum á lífsleiðinni sem vert að er að þykja vænt um. Margir sem láta manni líða vel og maður á ekki að eyða tímanum með einhverjum sem maður er ekki sáttur við.
Munið það kæru vinir og hugsið ekki síður um sálarlífið en útlitið - það vill nefninlega stundum gleymast ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum
/ Álit
hárrétt hjá þér! þú ert líka æðisleg, ég sakna þín! :)
ps. hver??
28.09.07 13:41
það er mikið til í þessu hjá þér.....láttu þér líða vel
28.09.07 21:28
hahah
þetta líf er til þess gert ....trúðu mjjé ee eer
28.09.07 21:29
Gott ef þú hefur ekki bara rétt fyrir þér stelpa! :D
En ég er alveg að sjá það að du og jeg þurfum að hittast aðeins og spjallast! :D hehe...
En haltu áfram að hafa það gott.. miss you big time!!
29.09.07 11:50
Takk fyrir skutlið í gær Hanna mín ... er ekki annars allt í lagi að nota vini sína svona annað slagið?? ;) haha
29.09.07 20:19
Já gott hjá þér að vera ánægð með þig eins og þú ert! - Því þú ert frábær þannig! Sjáumst í skólanum á morgun :)
01.10.07 14:37



