Þriðjudagur 07. ágúst 2007 / 15:27 / Versló ofl...
Helgin búin. Þvílíkur bömmer. Þetta var yndisleg helgi í alla staði, fyrir utan smá þynnku hehe.
Reyndar má eiginlega segja að stuðið hafi byrjað á fimmtudagskvöldið því við Jói og Vala sátum hérna heima í Nýja-Sjálandi og spiluðum til 4 um nóttina. Algjör snilld. Ótrúlega gaman!
Á föstudeginum var opið á Kríunni til 4 og síðan tók við tiltekt og að græja sig fyrir "heimferð"
Flugið okkar var rúmlega 9 og náðum við að sötra örlítin öl fyrir flugið svo að ég var alveg sallaróleg í flugtakinu ;)
Inga sótti okkur á flugvöllinn (Takk gullið mitt) og við gellurnar fórum svo að smyrja í hrukkurnar og héldum svo af stað á djammið. Byrjuðum í partý hjá Reyni vini Jóa þar sem við fórum 6 í Hæ-Gosa og það var alveg ótrúlega gaman. Snilldarspil. Síðan röltum við niður í bæ. Það voru ekki margir í bænum á föstudagskvöldinu en Jói og co vildu endilega fara í Sjallann, en ég var enganvegin að nenna á eitthvað Flex dæmi og troðning þannig að ég fór bara á Kaffi Ak í von um að finna einhvern sem ég þekkti. Auðvitað rakst ég á Karen súperbeib og tjúttaði ég með henni framundir morgun! Takk fyrir það Karen, geggjað að dansa með þér.
Ég hitti fullt af góðum vinum og kunningjum í bænum og það var ótrúlega gaman að sjá þetta lið aftur eftir svona langan tíma. Hitti Lísbet, Pálu, Írisi Bumbulínu (Svaka sæt með kúluna), Bryndísi ofl ofl.
----
Á laugardeginum skellti ég mér í tívolí. Heilsan var nú ekki uppá sitt besta þannig að ég ætlaði nú ekki í nein tæki, en jú ég var plötuð í eitt tæki og hélt að maginn myndi ekki hafa það af! Hehehe... Þetta var samt alveg ótrúlega gaman.
Laugardagskvöldinu eyddi ég svo á Kaffi Ak, bókstaflega. Fór aldrei útaf dansgólfinu held ég. Geðveikt gaman. Fór í fyrirpartý til Dömmu vinkonu sem var að kaupa sér nýja fína íbúð í Bjarkalundi. Æðislega flott íbúð.Til hamingju Damma og Gummi!! :D
----
Sunnudagskvöldið flaug ég svo heim til Grímseyjar. Notalegt að komast heim eftir fína helgi í landi. Frekar einmannalegt samt sem áður þar sem Unnur of family er enþá á flakki um Ísland og koma ekki heim fyrr en seint og síðar meir.
Ég var þreytt en ánægð þegar ég lagði höfuðið á koddann á sunnudagskvöldið enda átti ég frábæra helgi, hitti fullt af góðu fólki og skemmti mér rosalega vel.
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Þú hittir nú okkur! :D Veit ekki hvenær við eigum eiginlega að komast til Grímseyjar, kannski síðustu helgina áður en skólinn byrjar? Við reynum allavega..! ;)
12.08.07 22:10



