Þriðjudagur 07. ágúst 2007 / 15:51 / Smááá grín :)

Ég var frekar mikið kvikindi í gær. Reyndar fannst mér ég vera rosalega fyndin, en það voru ekki allir sammála því hehehe.
Eftir vinnu í gær skruppum ég, Siggi og Árni (synir Gunnu og Binna sem eru eigendur af Kríunni) á rúntinn. Þeir voru eitthvað að tala um einhverja ferð út á Fót, en það er nyrsti oddi eyjunnar. Þangað hef ég aldrei komið svo að við ákváðum að skella okkur. Þangað er hinsvegar ekki fólksbílafært, þó við værum nú á Suzuki Vitara, og fékk ég því stóra stóra trukkinn hans Hennings lánaðann.
Það var nú minnsta málið að fá bílinn lánaðann og ég taldi Jói bróðir Hennings trú um að ég væri vön að keyra bíl með svona stór dekk. Thíhí
Við lögðum af stað í einhverja svakalegustu svaðilför sem ég hef farið í lengi. Ég var með hjartað í buxunum allann tímann. Keyrðum niður brekkur í gríðarlegum halla þar sem við horfðum nánast beint niður björgin, keyrðum niður Brattann (rosaleg brekka) og upp hann aftur! Árni var duglegur að segja mér til (það mátti ekki alltaf fara ofaní hjólförin, stundum þurfti ég að keyra með annað dekkið ofan á miðjunni milli hjólfaranna, þið skiljið hvað ég meina. Þá kom sér nú vel að vera gríðarlega góður driver og vita nákvæmlega hvar dekkin á bílnum eru hehehe)
-----
Við förum niður einhvern rosalegan halla og þá segir Árni "Það er nú eins gott að við veltum ekki hérna, þá förum við beint niður í sjó!" og þá dettur mér í hug að stríða aðeins Henning, sem er staddur í Vestmannaeyjum. Ég sendi honum því sms sem hljómaði nákvæmlega svona:
"ég velti bílnum.,"


Henning reyndi að hringja, en þá hef ég verið ofan í einhverri dokku og ekki í símasambandi. Hann verður áhyggjufullur og hringir í Jóa bróður sinn, sem hringir í Sigga og þeir fara að græja sig í leitarferð eftir mér. Loksins nær Henning á mér en er ekki alveg að taka mig trúanlega. Ég reyni að gabba hann í smá stund, en þegar ég heyri að drengurinn var alveg að farast úr áhyggjum ákvað ég að segja sannleikann. Henning varð alveg brjál, hringdi í Jóa til að stoppa hann af, og sagðist ætla að fyrirgefa mér í næstu viku :)
Við Siggi og Árni þorðum ekki annað en að keyra stystu leiðina heim og skila bílnum til Jóa hehehe
----
Myndir úr ferðinni koma bráðum :D

Þessi færsla er skráð í flokknum vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.

/ Álit

mamma:

Manstu eftir sögunni um strákinn sem kallaði ..úlfur úlfur .........................

08.08.07 13:57


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín