Mánudagur 02. júlí 2007 / 22:25 /

jæja ég er alveg búin á því núna eftir helgina. Hún var svo ótrúlega skemmtileg og fáránlega fljót að líða. Hreinlega bilað að gera í vinnunni og bara almennt í eyjunni!. Mikil vinna, djamm og veiði :) Það var semsagt sjóstangaveiðimót hérna og fuuullt af fólki á svæðinu. Ég keppti svona líka eftirminnilega á mótinu, veiddi 1 (einn) fisk! Bwahaha þetta var svooo fyndið. Ég varð semsagt sjóveik á leiðinni út og rétt áður en við vorum komin á "miðin" þá byrjaði ég að æla. Eftir það hresstist ég nokkuð og skellti á mig stönginni og græjum og renndi fyrir fiski. Loksins beit einhver á og ég byrjaði að hala inn. Það gekk svo vel að ég var nææææstum því komin með fiskinn alla leið upp þegar ég þurfti að æla. Reif af mér stöngina og Maggi skipstjóri tók við henni og lauk við að koma aflanum mikla um borð. Ég hinsvegar snéri mér að því að skoða hafsbotninn gaumgæfilega :)
Þegar ég loksins hafði kjark til að reisa mig upp, skreið ég niður í koju og Maggi færði mér fötu sem ég ældi í á svona 5-10mín fresti. Og hverju ældi ég? Nákvæmlega engu! Þetta var viðbjóður. Jæja. Maggi kallar í talstöðinni að einn hásetinn hjá honum sé "algjörlega out of order" og spyr hvort einhver geti sent mig í land. Það var því miður enginn til í það. Þá var hringt í land og beðið um að ég yrði sótt, enn enginn bátur í landi sem gat sótt mig. Ég var semsagt föst einhversstaðar mitt á milli Grímseyjar og Kolbeinseyjar, ældandi sjóveik og hálf meðvitundarlaus. Það birti nú samt aðeins yfir og var annar bátur sendur eftir mér, þar sem sá sem ég var á vaggaði svo mikið. Ég ældi samt bara áfram í hinum bátnum. Var sjóveik í 7klst af 8klst ferð. Haha, geri aðrir betur. Ég er svo vonlaus Skipstjóradóttirin sjálf!! Ég get samt verið "ánægð" með það að vera fyrsti, og eini keppandinn hingað til sem fer á sjó í einum bát og kemur heim á öðrum! Í Birninum fékk ég góða þjónustu, hlýtt teppi, nýtt kók og góða koju. Ældi því bara á 20-30mín fresti þar!
Fyndnast var nú samt þegar aflanum var landað. Já stóri stæðilegi fiskurinn minn (undirmáli, innan við 1kg hahaha) fékk að fara alveg sjálfur í kari uppá land og þar var hann myndaður í bak og fyrir. :)
Síðan um kvöldið var alveg geggjað djamm. Fyrst var grillað handa öllu liðinu, rosalega góður matur og gott meðlæti! Nammi namm... Síðan fór maður heim og græjaði sig fyrir kvöldið og skellti sér svo á ball. Dansaði alveg helling, en kl 3 var ég gjörsamlega búin á því og skreið heim í bólið...
Góð helgi að baki sem leið alltof fljótt. Inga vinkona sló í gegn hjá mér þegar hún mætti á svæðið, og ótrúlega leiðinlegt að kveðja hana á bryggjunni á sunnudaginn. En jæja, ég er að koma í land á miðvikudaginn og þá fæ ég að hitta elskuna mína aftur!! :D
Og auðvitað mömmu og pabba, Aníku og Helga (Aníka, brúðkaup á laugardaginn, ekki gleyma! hehe) Helgu, Binna og Dag, Jóa minn ofl ofl ofl...
Sakna allra rosalega mikið, Skrítið að hafa enga vini hérna (jú, á auðvitað vini hér, en ekki MÍNA gömlu góðu vini!) og enga fjölskyldu, þó Unnur og Co komist nokkuð nálægt því að vera fjölskyldan mín. Ætli ég eigi ekki eftir að kvarta enþá meira þegar við jói erum flutt til Reykjavíkur þar sem ég þekki engan nema Munda bróðir! (Sem er nú samt ágætt því þá fæ ég einhversstaðar að borða hehehe)
Jæja. Best að koma sér úr skokkgallanum, í sturtu, náttföt og svo bólið. Hlakka til að hitta ykkur á miðvikudaginn elskurnar mínar!



Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Sigrún Jóna:

Æji Guð, elskan mín, þetta hefur verið skrautleg sjóferð ;)
Dúddamía... ekki skrítið þó þú hafir skriðið heim þarna kl 3.... finnst þú nú hafa endst nokkuð vel bara ;)

Og kellan svo bara að fara suður...!
Það eru orðnir nokkrir áfangastaðir sem þú ert búin að lenda á .... Akureyri, Grenivík, California, Grímsey, og svo Reykjavík!... djöfull er ég stolt af þér ;)

Jæja... sjáumst vonandi áður en þú flytur suður ! :*:*:*

02.07.07 22:48


baddy systir:

afrek vikunnar held ég bara!

02.07.07 23:45


hannaberglind:

sæl nafna mín og takk fyrir síðast,
þú ert hetja hafsins fyrir að lifa af þessa veiðiferð. Ég verð endilega að senda þér myndina af aflanum þínum:)
Hugsaðu vel um Kríuna mína:)!!

04.07.07 01:07


sandra og co:

jæja er maður bara orðinn enginn núna..? vildi nú líka þakka þér fyrir upplýsingarnar um ferðir út í grímsey.. komu sér vel :(
verðum kannski í bandi þegar þú kemur suður

04.07.07 20:24


Embla Rún:

Ógeðslega gaman hjá þér! :) Gaman að sjá þig á ljósunum um daginn. Ha er þetta HANNA LÍNA!!! Óstjórnleg gleði svo ég var næstum búin að missa stjórn á bílnum :)

09.07.07 15:37


Helga Kr.:

Alltaf gaman að heyra frá þér :)
Kveðjur í Grímsey - er Bjarni ennþá hreppstjóri? Við fórum þarna nokkrar árið 1990 og þá tók hann Bjarni á móti okkur...eða mig minnir að hann hafi heitið það.. hehe.. allt of mörg ár síðan!!
Hafðu það gott :)

10.07.07 16:14


Alma Kristín:

HÆæææææ elsku snúllan mín... ekkert smá gaman að hitta þig um daginn :) jæja nú getur hjarta þitt glaðst.... við Jóna erum að plana að heimsækja þig út í eyju....:o) vonandi sem fyrst, þú lætur okkur bara vita hvenær það er frí eða bara hvenær við megum koma hehe ;) verðum í bandi ;)

11.07.07 13:26


Snævar Jón:

hæ Hanna, les oft hjá þér bloggið gaman að því og ég verð að segja að ég er nú á suðurlandinu líka á eftir að líta á ykkur í kotið... annað sem gjörsamlega stakk mig í augun en það er að þú byrjaðir að æla þegar þú komst á miðin...
er ekki Grímsey á miðunum?:)
allavega glæsilegt að þú sért í Grímsey gott fólk þar:)
hafðu það gott og hittumst í vetur:D

12.07.07 10:23


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín