Mánudagur 18. júní 2007 / 00:17 / Þreyta...
Í kvöld er ég þreytt. Ég er alveg afskaplega afskaplega lúin, en samt er ég ekki farin að sofa. Afhverju ekki? Nú, ég er með internet!! Alveg óþolandi tímaþjófur, sérstaklega MSN.
Helgin var frábær í alla staði. Brjálað að gera í vinnunni og mikið djamm. Ég er auðvitað stillti karlinn (Grímseyska) og alltaf bakvið barborðið. Ferming á laugardaginn. Flestir eyjaskeggjar (og um 200 gestir) voru samt sem áður þunnir í þeirri fermingu þar sem ég var með opið á Kríunni til 4 um nóttina. Þá sagði ég bara hingað og ekki lengra, drullið ykkur út og farið að strauja skyrturnar fyrir morgundaginn.
Fermingarveislurnar voru haldnar í Féló, sem er skólinn/félagsheimilið hérna. Fjögur fermingarbörn og öll með eina stóra matar/tertuveislu. Mjög sniðugt þar sem allir þekkja alla, og öllum boðið! Borðaði á mig gat af mat, og síðan aftur af kökum. Ljúúúft ;)
---
Næstu vikur eru vandlega planaðar af allskonar rugli og vitleysu. Hópur næstu helgi (ef ekki bara tveir hópar! Ekki alveg komið á hreint). Vorum að fá Crepes-pönnu á Kríuna þannig að núna er bara að fara í að panta matvöru og byrja að gera Crepes alveg á fullu :) Ætla að leggja mig alla fram í að gera besta Crepes á norðurlandinu. Helgina eftir það er sjóstöng og þá mæta alveg hellingur af liði hingað, ball og skemmtileg heit. Inga Rut mín kemur þá!!!! Get varla beðið eftir að taka sporið með henni. VIð vorum að pæla í að skrá mig sem nýliða, og þá verð ég líka á sjóstöng. Hef aldrei farið (fyrir utan smá með Rannveigu og Bjarna um daginn) og spennandi að vita hvort skipstjóradóttirin getur eitthvað fiskað :P
---
Gyða og Unnur fóru út að skokka áðan. Ég var svo mikil sófaklessa að ég svaf bara á meðan :( Þær komu síðan eldsprækar (og sveittar) til mín áðan og voru með yfirlýsingar um morgunskokk kl 7 í fyrramálið. Sögðust ætla að rífa mig á lappir (ekki það að ég sé svona löt að fara aldrei út að skokka, fer nánast á hverjum degi)... vandamálið mitt liggur í því að vakna kl 7. Gengur ekkert alltof vel í þeim bransanum þar sem ég er að verða vön því að sofa fram að hádegi hehe.
----
Útí allt annað.
Við Jói erum komin með íbúð í Reykjavík fyrir næsta skólavetur. Skólinn hjá mér byrjar að öllum líkindum 3.sept (á eftir að double-checka þá dagsetningu) og við fáum íbúðina afhenta 1.sept. Hún er ekki stór, og ekki merkileg, en ódýr og mjög vel staðsett. Þeir sem ætla að fá gistingu hjá okkur verða bara að sætta sig við að sofa annað hvort uppí hjá mér eða dýnu á gólfinu.
Þröngt mega sáttir sitja verður bara mottóið okkar :D
----
Jæja börnin góð. Best að leggjast í bólið, komið gott í bili. Mjög innihaldslaust blogg en örugglega ágætis lesning. Ég nenni samt ekki að lesa það aftur yfir...
Eitt að lokum. Ég bið kærlega að heilsa fjölskyldunni "minni" á Grenivík ef að þið lesið þetta! Kem því allt of sjaldan í verk að hringja... :S
Góða nótt góðir vinir... góða nótt...
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Kata:
Já töff að þekkja aðal crépes-kokkinn á norðurhjara veraldar! :)
.....en hvar er íbúðin? nálægt mér? partý? sleepover?.... nei ok.... róleg! hehe
20.06.07 08:56
16 days baby!! can't wait!! :D
love you! :*
21.06.07 09:27
Bíddubíddu.... grímsey?? Ertu ekki að grínast! Ok allt í lagi að fara til USA! en Grímsey!! djók ;) ;)
Vá ég væri alveg til í að vera þarna með þér gella!!
Bara vinna og skokka og sofa... einhversstaðar á svona afskekktum stað!
æji.... miss you..
sjáumst vonandi fljótlega ;)
22.06.07 15:30



