Sunnudagur 10. júní 2007 / 22:26 / Helgarfrí
Ég skrapp heim um helgina. Reyndar engin skemmtiferð þannig séð, jarðaförin hennar ömmu á laugardaginn. Falleg athöfn en erfið. Alltaf erfitt að kveðja ástvin, en svona er lífið og maður er alveg sáttur fyrir hennar hönd.
----
Það er ekki laust við að ég sakni Grímseyjar. Bara búin að vera nokkra daga í burtu og get ekki beðið eftir að fara þangað aftur. Fer með ferjunni kl 9 í fyrramálið. Ekki laust við að ég sé með ööööörlítið meiri farangur heldur en ég tók með mér í land ;) Eiginlega einni ferðatösku og einum stórum kassa meira :P Maður verður nú að byrgja sig almennilega upp! hehehe
----
Kíkti á Freyju frænku á föstudagskvöldið. Horfði á MADtv og hló geðveikt mikið... þangað til ég sofnaði! Skemmtilegur gestur það. Við Trausti frændi lágum sitthvoru meginn í sófanum og hrutum - held reyndar að hann hafi hrotið meira en ég ;) Eða svo segir sagan hehe.
----
Dagný systir kom heim frá DK til að vera við jarðarförina. Tók Danna litla með sér og rosalega gaman að hafa þau hérna. Danni er svo mikið rassgat. Fór með hann á róló í kvöld og hann sagði mér hvernig maður segir "róla" á dönsku, "vegasalt" og fleiri orð.
----
Jæja, ég ætla að fara að setja inn einhverjar grímseyjar-myndir á meðan ég kemst á netið. Erum reyndar búin að fá sendan adsl-pakka til Grímseyjar, og ætla að setja það upp í vikunni. Þá get ég sko sörfað almennilega á netinu og hangið á msn fram á nóttu! :P
----
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Valgerður Inga:
Jáhh þetta var erfitt. Líka ábyggilega ekki auðvelt að vera í kringum mig þarna, lét alla fara að gráta ehh :S
En það var nú samt gaman að hitta þig :) maður hittir þig of sjaldan!
11.06.07 22:29



