Fimmtudagur 07. júní 2007 / 14:43 / Grímsey

Lífið á norðurhjara veraldar er svo ljúft að þið trúið því ekki! Ætla ekki einu sinni að reyna að segja ykkur hvað þetta er yndislegt því ég veit að þið trúið því ekki.
Fyrir þá sem ekki hafa náð að fylgjast með mér persónulega, þar sem ég hef ekkert komist á netið, þá ætla ég bara að byrja á byrjuninni.
Ég fékk vinnu á Kríunni, sem er veitingarhús/bar hérna í Grímsey. Unnur "frænka" og Svafar eiga staðinn ásamt öðrum hjónum. Ég flutti á miðvikudaginn síðasta til Unnar og Svafars í leikherbergið sem Sigrún Edda og Brá (dætur þeirra) eiga. Herbergið mitt er semsagt mjög bleikt, og mikið af dóti! Hehe.
Vinnan gengur mjög vel. Búin að læra flest allt og er líka búin að vera ein með hana síðan á sunnudaginn. Báðir eigendur í landi og engin stórslys á meðan ;)
Vinnutíminn minn er mjög breytilegur. T.d. núna er ég heima hjá Guðrúnu Ingu vinkonu og á að opna kl 6. Skemmtiferðaskip að koma í kvöld þannig að hugsanlega verður nóg að gera hjá mér sem er auðvitað frábært.
------
Það hefur verið nóg að gera hjá mér undanfarið þrátt fyrir


að ég sé búin að vera ein heima. Bjarni (bróðir Svafars) og Rannveig tóku mig eiginlega "að sér" og við Rannveig fórum ásamt Stellu og Björgu í Kríueggjaleit á mánudagskvöldið. "Tvö egg í bolla!" og þá var sko öskrað og fagnað eins og vitleysingar hehe.
Þriðjudagskvöldið fór ég með Bjarna og Hannesi í Skeglueggjaleit, klifruðum í stuðlaberginu og náðum ca 200eggjum. Æðislegt.
Í gærkvöldi fór ég með Bjarna og Rannveigu í siglingu. Sigldum hringinn í kringum eyjuna, skutum uppí klettana og fengum svona 150,000,000 fugla yfir okkur á sama tíma. Það gjörsamlega dimmdi yfir. Geðveik upplifinun! Stoppuðum líka og fórum í smá sjóstöng og sáum svo höfrunga á heimleið sem eltu bátinn, fóru undir hann og allt í kring.
----
Nóg að gera í Grímsey og enginn tími til að hanga bara á netinu! ;) Fæ net heima í næstu viku þannig að þá blogga ég oftar og set líka inn myndir - nóg af þeim!
---
Bið að heilsa, Landkrabbar!
---
Hanna Eyjaskeggi
----
p.s. það er búið að vera GEGGJAÐ veður sl 5-6 daga. Logn og blíða. Endalaust sólskin og maður orðinn fallega gylltur eins og ostur í ofni :P
p.s.s. Ég er að koma í land á morgun og verð fram á mánudag ef einhver vill vita af mér!

Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.

/ Álit

freyja:

Mig laaaaangar svo að heimsækja þig í Grímsey..... lets meik a deit ok?

07.06.07 16:58


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín