Sunnudagur 24. júní 2007 / 16:03 / Það er gaman á Grímseyjarsundi...

Vá. Þessi helgi var alveg ótrúleg. Gott djamm á föstudaginn og í gær kom 50manna hópur í hádegis og kvöldmat. Það var crazyness!
Annars gengur lífið sinn vanagang hérna í eyjunni. Kl hálf 5 að nóttu sátum við Svafar við matarborðið inní eldhúsi. Ég að borða nætursnarl, hann að borða morgunmat. Síðan sagði hann Góða nótt, og ég sagði Góða ferð á sjóinn. Pínu súrrealískt.
Hérna er unnið, sofið og drukkið. Eða eiginlega drukkið, unnið og sofið! ;) Í þessari röð semsagt hehe. Ekki samt ég sem drekk svona mikið.. ónei ónei, ég er sú sem er alltaf bakvið barborðið. Vann 14.5tíma á föstudaginn og 15.5tíma í gær. Í dag er ég svo að vinna frá 6-?. Maður veit aldrei hvað þessum Grímseyingum dettur í hug að gera á ókristilegum tímum thíhí.
Frá því ég kom hingað er ég búin að eyða svona kannski 2000kr þannig að planið mitt um að spara er allavega að ganga mjög vel. Hlakka samt til að koma í land í brúðkaupið hennar Aníku. Ótrúlega leiðinlegt að komast ekki í gæsunina í gær. Skemmtu sér víst alveg rosalega vel gellurnar í gær. Sorry stelpur að ég komst ekki! :S
Jæja. er ekki kominn tími á myndir??
Langar að sýna ykkur Kríuna mína.
kr%EDan%20014.jpg
Þetta er fyrir utan.. ofcourse ;)
kr%EDan%20012.jpg
Barinn flotti.. ótrúlega glæsilegt.
kr%EDan%20010.jpg
----
Hérna eru líka einhverjar ruglmyndir.
DSC00094.JPG
Ég og Siggi Hennings í góðu geimi
DSC00097.JPG
Við Unnur hressar og sprækar í vinnunni einhverja nóttina
DSC00098.JPG
Katrín, Sigrún Edda litla "systir" og Helga Hrund sætu skvísur á sjómannadaginn
DSC00117.JPG
Farartækið okkar hérna í eyjunni. Algjör snilld :D
DSC00127.JPG
Bjarni Gylfa í Skeglueggjaleit
DSC00210.JPG
Ég og Gylfi sjóari. Hann er alveg yndislegur. Sagði við mig aftur og aftur þetta kvöld: "þú ert svo skemmtilega lík honum pabba þínum" :)
DSC00224.JPG
Sigrún Edda og Gyða mjög ferskar að kúra saman einhvern morguninn
---
Nóg af myndum í bili. Á eftir að setja fleiri myndir úr símanum yfir í tölvuna og kem þá með meira svona myndablogg.
---



Þessi færsla er skráð í flokknum myndablogg. Þar eru 51 færslur.

/ Álit

Aníka:

styttist í þetta! fúff... hlakka til :D

28.06.07 12:36


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín