Þriðjudagur 08. maí 2007 / 15:16 / Síðasta vikan á Grensó ofl.

Þessi vika er síðasta vikan mín hérna á Grensó. Það er alveg ótrúlegt að hugsa til þess að núna á ég eftir að koma hingað bara örsjaldan - bara í heimsóknir....
Síðasti dagurinn minn er núna fimmtudagurinn 10 maí og þá fer ég heim á Hauganes.
Hinsvegar er ekki búið að bjóða mér í Eurovision partý?!! Hvað er málið??!!! Ég skil ekkert í þessum svokölluðu vinum mínum.. hmm? ;)
Spurning hvort að ég ætti bara að halda smá teiti heima á Hauganesi því þar er verið að ljúka við sólskálagerð. Agalega flott hjá gömlu hjúunum. Binni hennar Helgu er búinn að vera að hjálpa pabba að flísaleggja og þeir klára örugglega í kvöld eða á morgun. Snilld! :D
Annars er ég farin að sakna Helgu minnar mikið.. líka Aníku sem er alltaf í borginni! :( Baddý systir hefur verið niðursokkin í próf líka en það fer allt að lagast - prófin búin á föstudaginn,..
Föstudagurinn sem er víst AFMÆLISDAGURINN MINN!
Já ég er að verða 22ja ára. Geggjað ;)
Allir að muna að óska mér til hamingju á föstudaginn!


Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.

/ Álit

freyja:

ég var einmitt að furða mig á því að það er enginn búinn að bjóða mér í júróvisjon partý.... mjööööög einkennilegt. Ég verð örugglega ein heima með stakan öl, skála fyrir Eika, syng með dramatíska laginu hans og gef mig alla í það, prjóna kannski nokkrar umferðir og fer svo að sofa.....
Spennandi.. við ættum kannski að heyrast eitthvað með laugardagskvöldið ljúfan...... tjútta ?? Dansa til að gleyma? já?

Ertu ekki bara til í aða Köben ferð fljótlega? I am!

;)

08.05.07 21:07


Sigrún:

Heyrðu sæta sæta, ætlaði barað þakka kærlega fyrir kápuna hennar bellu:) og til hamingju með afmælið á morgun;) á ekki barað djamma um helgina einsog þú egir lífið að leysa?

10.05.07 09:26


Linda:

hei það er Eurovision partý í Örebro hjá Lilý á laugardaginn .. þú mátt alveg koma þangað ef að þú vilt ;) skelltu þér bara upp í næstu flugvél til Svíþjóðar !! Tíhí

10.05.07 18:01


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín