Fimmtudagur 10. maí 2007 / 23:23 / Grímsey here I come!
Skjótt skipast veður í lofti!
Haldiði að kellan sé ekki bara að fara útí Grímsey í sumar að vinna á Kríunni sem er veitingarhús þar. (Já ég veit, það ER veitingarhús í Grímsey!)
Ég var búin að fá vinnu á sambýlinu í Snægili, en ákvað að skella mér frekar útí Grímsey því það er það sem mig langar til að gera, og núna er kominn tími til að hugsa um mig. Ég um mig frá mér til mín! :)
Síðasti dagurinn minn í Krummafæti var í dag. Það var alveg svakalega erfitt að kveðja alla krakkana og elskulega samstarfsmenn mína. Æðislegt að vinna þarna. Börnin yndisleg og fólkið líka. Kristján Bjarki og Vésteinn Kári gáfu mér svona glerplatta og kúlukerti í kveðjugjöf. Alveg frábært af þeim. Ég var eiginlega alveg orðlaus.
Ég skrapp á Grenilund áður en ég fór frá Grensó (núna er ég flutt þaðan) og var með kökkinn í hálsinum og tárin í augunum meðan ég faðmaði Steinku mína bless. Hún er svo æðisleg og alltaf gott að koma til hennar á Grenilundinn.
Helgin er líklega svakaleg djammhelgi. Reyndar á að skíra elsku Emblu litlu frænku á Laugardaginn og verður maður víst að vera sprækur í það. Ætla að þrífa hérna heima á morgun og svona. Nick verður í pössun uppi í Ási (hjá Nínu) á meðan skírnarveislan er hérna heima svo hann borði ekki allar veitingarnar af gestunum híhí. Alltaf svangur greyið :)
Jæja. Ætla að skella mér í gott freyðibað og horfa á My Name is Earl á meðan. (Snilldar þættir) Reyni svo eftir bestu getu að vakna á skikkanlegum tíma á morgun - afmælisdaginn sjálfan! Gangi mér vel
Skelli inn einni loftmynd af Grímsey svona í lokin... þarna verð ég í sumar! Allir að koma í heimsókn!! (Krummafótargellurnar eiga pantaða jónsmessunótt!) ;)

Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Vala:
Til hamingju með daginn;).... bið að heilsa í Grímsey.....
11.05.07 08:43
vá ég þurfti alveg að rýna í myndina til að sjá einhverja byggð þarna :D en innilega til hamingju með dagin stelpa, njóttu hans vel og helgarinnar líka.. svo er aldrei að vita nema mar kíkki til þín í sumar, við höfum aldrei komið til grímseyjar svo that will be the first.. ekki amalegt að þekkja einhvern sem getur bent manni á helstu túristastaðina hahahaha.. æ sorry bara varð aðeins að stríða
knús í tilefni dagsins
kveðja sandra og co
11.05.07 09:34
Til hamingju með afmælið og með nýja djobbið í Grímsey, ég snæddi einmitt hinn besta borgara þarna sumarið 2005, kannski kominn tími á að skreppa aftur til Grímseyjar og fá sér borgara á Kríunni í sumar :-)
11.05.07 14:26
Þabbarekkertannað..
Ég held að þetta verði gaman. Njóttu. Og til lukku með daginn.. :)
11.05.07 16:42
til hamingu með gærdaginn elsku Hanna! ég mundi eftir afmælinu í gærmorgun en ákvað að það væri of snemmt að senda sms og svo bara mundi fór ég í vinnuna og gleymdi öllu! en Grímsey hljómar spennandi, never been there, stefni á það einn daginn.
12.05.07 06:51



