Laugardagur 05. maí 2007 / 23:07 / Danmerkurferð :)
Síðasta helgi var alveg æðisleg!
Við fórum 6 saman úr vinnunni að skoða leikskóla í Danmörk mánudaginn sl. Reyndar hófst ferðin á föstudeginum þegar við flugum til Reykjavíkur og ég fékk gistingu hjá Munda bró og Svanhildi (Takk!) Eldsnemma á laugardagsmorgni hófst ferðalagið. Þegar ég segi eldsnemma, þá meina ég sko ELDsnemma!
Var mætt til Hóffu leikskólastjóra kl 04:10 um nóttina.. fékk samt fylgdarlið með mér en Svanhildur ber út morgunblaðið í götunni sem Hóffa var í þannig að hún og Mundi fylgdu mér alveg uppað bílnum. Takk aftur ;)
Flugið út var alveg magnað. Svaf alla leið :P Flestar voru þær nú samt sprækari en ég í fluginu og fengu sér smá snafs - nefni engin nöfn!
Við komum okkur vel fyrir í mögnuðu íbúðinni sem við vorum með við Vesterbrogade 109. 160fm takk fyrir takk og nóg pláss fyrir okkur allar. Við Jóna deildum herbergi og vorum eiginlega eins og gömul hjón í þessari ferð... Bara gaman að því.
Eftir að hafa komið okkur vel fyrir þá fórum og fengum okkur að borða á einhverjum stað í næsta húsi við þar sem ég fékk mér fínan kjúklingaborgara og Jóna fékk sér ehh..kúk! Mjög fyndið. þessi svokallaði "kúkur" var semsagt eitthvað kjúklingadæmi og var virkilega sterkt á bragðið. Við fengum svo einhverja jógúrtsósu á borðið (hélt ég) og Jóna mokaði henni yfir matinn sinn til að minnka þetta sterka bragð! Hefði samt betur sleppt því, því þetta var einhver home-made-indversk-bragðlaukasprengja! Heheh, mikið hlegið að þessu :) Síðan var haldið sem leið lá niður á dúkkuhúsasafninu sem reyndist samt vera lokað! Frekar fúlt þar sem mig hlakkaði mikið til að sjá þetta safn. Gátum samt kíkt pínu innum gluggana og fengið smá forsmekk af því sem fyrir innan var. Ekki var þessi ferð til fjár því næst héldum við í Fisketorvet sem er verslunarmiðstöð og þar fyrst fékk VISA-kortið að kenna á því. Allamalla ég eyddi svo miklu í þessari ferð! Íííik þetta var samt svo gaman :D
-----
Á laugardagskvöldið kíkti ég svo á Guðný vinkonu og var það sko allsekki leiðinlegt! Alveg þess virði að fljúga bara til Denmark aðra hverja helgi til að hangsa með henni. Guðný, þú ert Æði! Já okei,.. Biggi.. þú ert ágætur líka. Bið að heilsa Thomas! Haha ;)
Nóttin mín endaði kl 5 um morgunin þegar ég kom heim sveitt af öllum dansinum á skemmtistaðnum RUST, með sígaretturlykt og áfengislykt í bland af fötunum mínum og hári. Oj barasta! Jóna fékk mig semsagt mjög ferska uppí rúm til sín. Hún var svo gríðarleg mamma þarna úti, með eilífðar áhyggjur af mér og sofnaði ekki almennilega fyrr en ég var komin uppí rúm :) Svaka krúttleg.
----
Sunnudagurinn byrjaði að sjálfsögðu í Fisketorvet þar sem það var eina verslunarmiðstöðin/búðareitthvað sem við vissum að væri opið. Þar hitti ég Dagný, Óla og Danna frænda sem keyrðu alla leið frá Árósum til að hitta mig! Það var ekkert smá gaman.. og svo skemmtilega vildi til að Dagný sys átti einmitt afmæli þennan dag, ekki verra að eyða honum með henni. Við fórum þrjú saman í tívolíið sem var alveg æðislegt! Danni fékk nánast óskipta athygli mína enda er hann alveg ótrúlega skemmtilegur og bara æðislegur í alla staði! Hefur ekki langt að sækja það drengurinn ;)
-------
Mánudagurinn var svo alvöru vinnu-dagur þar sem við löbbuðum í þrjá leikskóla að skoða aðstöðu og starfsemina. Það kom á óvart að allir þrír leikskólarnir höfðu EKKI leiksvæði! Semsagt enginn róló í kringum leikskólann. Allir voru þeir í gömlum húsum sem voru flest svona L-laga. Fyrsti leikskólinn var á þriðju hæð, fyrir börn á aldrinum 12mán til 6ára! Næsti var á 2 hæð og sá þriðji á svona 1,5hæð. Það sem var samt einkennandi við þá alla var hversu róleg börnin voru. Alveg æðislegt að sjá hvað þau voru ánægð. Reyndar fannst mér ekki gott að sjá hversu gríðarlega mikið dót var inná öllum þremur leikskólunum. Allt á kafi í leikföngum! En það var greinilega að virka fyrir þau, börnin ánægð og auðvitað er það það sem skiptir máli umfram allt annað.
Á mánudagskvöldið fór ég í eftirminnilega bíoferð. Ég heyrði í Guðný sem var á leiðinni í bío og ákvað að skella mér með. Síminn minn var í einhverju rugli og virkaði því ekki í Mörkinni þannig að ég var símalaus. Ég fattaði ekki að fá lánaðann síma hjá stelpunum, þannig að ég fór símalaus af stað í bíohús sem heitir Palads á leið á einhverja strákamynd sem ég mundi að byrjaði á "S". Jæja. Ég mæti á svæðið góðum 15mín fyrir sýningu og leitaði að Guðný sem ég hélt að væri mætt á svæðið. Ég leitaði útum allt og í kring og engin Guðný sjáanleg. 5mín áður en myndin byrjaði fer og kaupi mér einn miða á strákamyndina Shooter (konan í miðasölunni hélt örugglega að ég væri geðveik.. en jæja hverju skiptir það, á aldrei eftir að sjá hana aftur!) og fór inní sal. Hélt kannski að við Guðný hefðum eitthvað misskilið hvor aðra og að hún biði eftir mér þar. Ég ráfaði um salinn eins og vængbrotinn fugl, og endaði svo á því að setjast einhverstaðar alein útí horni (en það var okei, var í flottum fötum og geggjaða greiðslu híhí) og stuttu seinna komu 4 gaurar og settust við hliðiná mér ;)
Ég var búin að gefa upp alla von að hitta Guðný og ákvað að glápa á þessa ræmu og fara svo heim og hringja í hana. Þegar myndin var búin (eftir rúmlega 2 tíma!) stóð ég upp... hver haldiði að hafi verið svona 3 bekkjum fyrir aftan mig?? Engin önnur en Guðný með Bigga og Thomasi. Jább, algjört klúður! Guðný búin að hlaupa útum allt og leita af mér.. sá ekkert af myndinni! Búin að hringja í Jónu og stelpurnar "heima" voru við það að hringja á lögregluna! Þær ímynduðu sér allt það versta og Jóna sagði við stelpurnar þegar ég var búin að vera týnd í rúmlega 2klst:
"Jóhanna... hún er ekkert þunglynd er það? Meina.. var hún ekki bara spræk þegar hún fór?!"
Þetta var semsagt komið útí leigubílanauðgun eða sjálfsvíg! :P Á meðan sat ég pollróleg og horfði á myndina. Híhí.
Jæja, ég náði allavega að knúsa Guðný og hlæja með henni.. þó hún hafi reyndar verið hálf stjörf af undrun þegar hún sá mig birtast þarna í bíosalnum! :)
Ég fékk síðan mörg faðmlög þegar ég kom heim í íbúð og allir voðalega ánægðir að sjá mig. Gott að vita að fólk hefur áhyggjur af manni því þá er þeim greinilega ekki sama! Þær voru meira að segja farnar að ræða það hver þeirra ætti að verða eftir í Danmörku til að leita af mér með lögreglunni þar sem við áttum flug heim morguninn eftir. En allt fór þetta vel að lokum eins og í góðu ævintýri og ég var mjög ánægð að hitta mömmu og pabba heima á Hauganesi að kvöldi þriðjudagsins.
-----
Þetta var semsagt hin æðislega Danmerkur ferð mín! Fór út með eina ferðatösku og kom heim með tvær :) Held að það segi allt sem segja þarf um verslunargleði mína... :Þ
---
Þegar ég kemst í nokkuð góða nettengingu, eða hitti á gott móment hjá þessari tengingu hérna heima á Hauganesi þá kemur alveg hrúga af myndum inná netið. Þangað til þá fá bara þeir að sjá sem hitta mig!
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
takk fyrir síðast! þetta var frábær tivoliferð og rosalega gaman að hitta þig! :D - Danni saknar þín ;)
06.05.07 12:23
Hehehe þvílíkt ævintýri :) EN gott að þú ákvaðst að vera samferða hinum skultunum heim aftur ;)
Heyrumst gella... :)
06.05.07 21:18
Hahahahaha þetta var allt svo fáránlegt að ég á ekki orð :) en þú ert auvðitað velkomin hverja helgi til að koma og dansa, en ég nenni ekki með þér í bíó aftur :D
þú ert æði gæði, við sjáumst vonandi fljótt!
06.05.07 21:38



