Sunnudagur 01. apríl 2007 / 21:56 / Myndir
Jæja ég er búin að sitja sveitt hérna við að setja inn myndir.
Hérna eru myndir frá Þormars helgi, og hérna er spilakvöld með Dömmu, Gumma og Freyju, hérna eru myndir frá vorskemmtun Grenivíkurskóla, hérna myndir úr Laufási, myndir af litlu hans Ragga bróðurs sem fékk það fallega nafn Embla Lind og að lokum ýmsar myndir sem við tókum í Mars, m.a. myndir frá því að Inga og Júnía komu í heimsókn.
---
Páskarnir á næsta leyti. Djöss snilld sem það er. Get ekki beðið eftir að fara í smá frí. Páskaball uppí skóla með stórhljómsveitinni Ulrich. Ætli mamma gefi okkur páskaegg?? ;)
---
Ég kíkti á djammið í gær. Var bara edrú, enda er það orðinn vaninn og langtum skemmtilegast! :D Freyja og Jói kíktu með mér, en Þorsteinn var að djamma með Bjössa Kobba og Gunna (Magnúsi)
Það var alveg troðfullur bærinn af fólki, veit ekki hvaðan það kom! Komumst samt inná Kaffi Ak eftir smá tíma í biðröð og dönsuðum eins og við fengjum borgað fyrir það! Sigrún Jóna kom og dansaði smá með okkur (takk fyrir það gella!) og bara svaka stuð á öllum.
Alltaf gott að vakna sprækur daginn eftir með enga þynnku og tilbúinn í slaginn.
Það var svo æðislegt veður í dag að ég hengdi út þvott á snúruna sem þornaði á smá stund! Hlakka ekkert smá til þegar sumarið kemur!
---
Ég er eiginlega orðin alveg ákveðin í að fara í fjarnám í haust og fara þá í Þroskaþjálfann. Jább, kemur eflaust flestum ykkar á óvart (not) en held að það sé málið fyrir mig. Sjáum svo til hvernig gengur. Þarf víst fyrst og fremst að komast inn!!
Það þýðir að ég verð ekki í 100% vinnu í haust, eða allavega í þannig vinnu að ég geti stundað skólann svona nokkurnvegin skammlaust.
---
Smá dramatík í dag þegar ég hringdi í leigjandann okkar til að láta hann vita að íbúðin væri tilbúin og lyklarnir á leiðinni til Ak. Þá HÆTTI HANN VIÐ! Ég fékk vægt sjokk og langaði til að láta nokkur velvalinn orð falla, en ég kann mig og sagði honum bara að stundum væri lífið ófyrirsjáanlegt og maður þyrfti einfaldlega að gera það sem maður þyrfti að gera! (Man gotta do what he gotta do!).
Ég sótti því dagskrána og hringdi í nokkra sem höfðu auglýst eftir íbúð. Við fórum svo til Ak um fimm í dag og hittum indælispar sem fékk lyklana afhenta á staðnum! Já tók ekki langan tíma og leist okkur alveg ótrúlega vel á þau. Það vandamál leyst! ;)
----
Jæja, ég er að opna á morgun þannig að ég þarf að vakna snemma, en bara í þrjá daga því svo er komið páááskafrí! Jej!
Hafið það gott elskurnar
Þessi færsla er skráð í flokknum myndablogg. Þar eru 51 færslur.
/ Álit
Bjarney:
jæja bara kvitta hjá þér elskan, vonandi að allt fari bara vel;)
02.04.07 12:46
hæhæ sæta mín ég sé að það er alltaf jafn mikið að gera hjá eins og vanalega, er farin að sakna þess að sjá þig ekki, hlakka til að heyra í þér á miðvikudaginn, ég þyrfti svo að tala við þig reyndar ég er nebbla búin að tala við Lilju..þú veist:Þ
jæja er að fara að leggja mig var að koma af vakt og Dagur orðin veikur svo ekki veitir manni af svefninum;P
kv. Helga Belga og Dagur lasarus
03.04.07 00:27



