Sunnudagur 08. apríl 2007 / 21:14 /

Jæja þá er páskafríið alveg að verða búið. Það er búið að vera alveg hreint æðislega gaman þessa páskana og við erum margt búin að bralla.
---
Á fimmtudaginn komu mamma, pabbi og Baddý í heimsókn (og píla auðvitað) og gistu. Við elduðum okkur lasagne sem var gríðarlega gott. Við sátum svo og gláptum á video langt fram eftir nóttu.
---
Föstudagurinn var tekinn svona temmilega snemma (um 8leytið) og byrjaði auðvitað á staðgóðum morgunverð og svo fóru mamma og pabbi með hundana í göngu, en ég skreið uppí rúm aftur ;) Vaknaði svo kl 10 og við fórum að græja okkur á KALDBAK! Jább, við vorum búin að panta ferð uppá kaldbakinn með Kaldbaksferðum. Halla, Sævar, Þorsteinn Ingi og Unnur Birta komu með okkur. Freyja frænka kom líka með tvær sunnlenskar vinkonur sínar (Telma og Anna Mjöll) en þessir sunnlensku rassar þoldu ekki neitt og voru þær vinkonur víst bláar og marnar eftir daginn ;) Reyndar gat Halla varla gengið og Baddý átti eitthvað erfitt með að setjast á gólfið ofl en jaxlinn hún Jóhanna kenndi sér ekki mein! :P Djöfull er ég frábær.
---
Laugardagurinn var svo tekinn í ró og spekt heima á Hauganesi þar sem mamma og pabbi buðu til páskamálsverðar. Gummi, Leifi (bræður mömmu) og Eva Mist (dóttir Gumma) komu og borðuðu dýrindis lambalæri ala mamma. Nammi namm. Við Þorsteinn fórum líka í göngutúr með Nick og Pílu. Það hefði verið æðislegt að vera með myndavélina en því miður gleymdist hún heima :( T.d. var frábært augnablik þegar Nick stökk léttfættur yfir skurð, en Píla gamla dreif ekki alla leið yfir og lenti með afturpartinn ofaní skurðinum! Það var alveg ógleymanlegt! Nick átti marga góða takta þarna, en við verðum alveg greinilega að þjálfa hann betur í innkallinu þar sem hann er gjörsamlega algjörlega að hundsa okkur þegar hann er að hlaupa laus og eitthvað meira spennandi en við! :S Það kemur með æfingunni.
---
Dagurinn í dag byrjaði með því að við kláruðum páskaeggin okkar strax... neehh... reyndar ekki! Eigum þau heil hérna á bekknum, og innihaldið er allt í skál hérna á borðinu! Úff þvílíkt súkkulaði át samt á manni í dag. Vorum í mat í Melgötunni (hjá tengdó) og þar var svínarúlla. Mhh maður át svo mikið! Eftir matinn héldum við familian í fjallgöngu (eða svona næstum því) og löbbuðum uppá Höfðann. Ég sem hélt að ég væri í svo æðislega góðu formi, var alveg að drulla á mig (eða svona næstum því) og þetta melgötupakk spólaði undan mér svo ég hvarf bara í reykinn! Alltaf gaman að fara í göngutúr með fólki - vera ein allann tímann og horfa bara á rassana hverfa bakvið hólana! en jæja, ég hafði þetta fyrir rest :)
Núna sit ég með rauðvínsglas við hönd, Þorsteinn og B.K. að hlusta á Bon Jovi inní stofu og Freyja einhversstaðar á leiðinni til okkar. Við ætlum að grípa í spil (reyndar koma Jósi og Arna líka held ég) og eftir spilerí förum við á fyllerí! Neh segi svona. Ætlum á "ball" á Miðgörðum.
Morgundagurinn fer svo bara í það að liggja fyrir framan tölvuna og horfa á allskonar þætti sem ég náði í hjá Baddý í gær. Takk Baddý!!
----
Afmælisbörn mánaðarins fá líka knús frá mér!
Baddý 4. apríl
Damma í dag! JibbíJej!
Olla tengdó 16. apríl


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

sandra:

hæbbs, leðinlegt að þú varst ekki heima þegqr við ætluðum að kíkka við hjá þér.. gengur betur næst..
kveðja

09.04.07 08:35


freyja:

Takk fyrir yndislegu stundirnar um páskana elskan mín. Alltaf gott að sækja ykkur heim skötuhjúin, tala nú ekki um þegar Nick litli kútur kúrir hjá manni alla nóttina ;)

Knús til ykkar ;)

p.s. æðislegar myndir og myndbrot á síðunni hennar Baddýjar.....

11.04.07 23:19


Anna Mjöll Guðmundsdóttir:

Blessuð og sæl og takk kærlega fyrir síðast :)
Við Thelma þræddum okkur í gegnum blogsíðurnar og rákumst á þessar skemmtilegu upptökur hjá henni Baddý hehehe! Algjör snilld :D
Takk fyrir ljúfar veitingar og það var mjög gaman að kynnast ykkur þarna á Grenivík!

Sjáumst vonandi í næstu heimsókn :)

Kv. Anna Mjöll að sunnan (marrassa).

12.04.07 13:30


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín