Sunnudagur 15. apríl 2007 / 17:50 / Fréttir...
Ég er með fréttir sem koma örugglega mörgum á óvart.
Við Þorsteinn erum hætt saman og ég er flutt heim á Hauganes í bili. Ég veit ekkert hvert framhaldið verður þannig að það þýðir ekkert að spyrja að því ;) Við hættum saman núna á fimmtudagskvöldið þannig að þetta er allt saman óákveðið og framtíðin óljós.
Lífið heldur samt áfram og núna fer ég bara að einbeita mér að sjálfri mér sem ég hef ekki gert lengi.
---
Helga vinkona og family komu heim frá Neskaupsstað í gærkvöldi og það var alveg frábært að hitta þau. Mikið hef ég saknað þeirra. Eftir heimsóknina hjá Helgu ákvað ég að kíkja aðeins út á lífið með Freyju og Jóa. Það var alveg ótrúlega gott að fá sér smá rauðvín í góðra vina hóp. Við vorum ekki komin niður í bæ fyrr en kl 3 sökum anna hjá BSO og varð því djammið frekar stutt en óóóótrúlega gaman. Við gistum síðan heima hjá Freyju og vöknuðum "spræk" kl 11 í morgun.
---
Það er fínt að vera hérna heima á Hauganesi í faðmi fjölskyldunnar. Raggi bróðir, Sandra og Embla Lind eru hérna í mat í kvöld og Baddý og Þorsteinn Ingi eru á leiðinni til okkar líka. Ilmurinn fyllir húsið enda er mamma með eindæmum góður kokkur ;)
---
Veit ekki hvenær ég blogga næst.. veit ekki einu sinni hvar ég ætla að eiga heima eða hvar ég ætla að vinna.
---
Lífið er oft hverfult en maður verður bara að taka því með stóískrí ró og horfa björtum augum framá við.
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
ég er búin að komast að því í gegnum lífið að það eina sem þarf í lífinu er góð fjölskylda, góðir vinir og eitthvað að hlakka til. that´s all we need honey. power toyah girlfriend:)
15.04.07 22:48
hæ hanna mín
var að vona að þetta væri aprílgabb en svo er nú ekki, þykir þetta voða leiðinlegt að heyra og þér er velkomið að hringja í mig hvenær sem er ef þig vantar einhvern til að tala við.. svo er alltaf til beddi ef þig vantar gistingu í borginni :)
kveðja sandra p
16.04.07 12:26
Ohhh.. ekki skemmtilegar fréttir :/
Stórt knús til þín Jóhanna og gangi þér rosalega, rosalega vel !!
Bestu kveðjur frá Bifröst :*
16.04.07 19:10
Snúllan mín.........KNÚS.........nýttu þetta sem gott tækifæri........og gerðu það besta úr því.......svo geturu alltaf komið í Blómaval og fengið frábæra þjónustu hehe
16.04.07 20:18
Ég hef aldrei þurft að hafa áhyggjur af þér og ætla sko ekki að byrja á því núna sæta mín, það er svo ótrúlegt hvernig þú tekur alltaf á hlutunum á skynsaman og góðan hátt og ég veit að þú átt eftir að vera sátt eftir ekki svo langan tíma. Hér er alltaf opið hús, með stór eyru sem finnst gaman að hlusta á einhvern þú veist það.......
þú stendur þig rosalega vel rósin mín
kv. HKJ
16.04.07 23:13
já þessu bjóst ég ekki við! En þú ert sterk og ég veit að allt leysist á endanum Hanna mín, ráðabetri manneskja er varla til.
Kys og kram!
17.04.07 10:59
hæhæ elsku Jóhanna mín.... ég trúi þessu bara varla, en eitt er víst að lífið kemur manni stöðugt á óvart... hugsa vel til þín og þú ert sterk ég veit það, knús og kossar úr borginni. kveðja gamla vinkonan Alma Kristín :)
17.04.07 21:36
Jæja nafna! ég var hreinlega búin að gleyma öllu planinu sem ég ætlaði að fiffa fyrir þig! Ég mundi það bara í gær því ég er að fara að gera nýtt fyrir mig! þannig ég var að spá hvort þú vildir ekki ennþá fá plan???
Hafðu það gott sæta ;)
18.04.07 10:56
Eydís Ösp:
Jæja kella mín, þetta eru nú ekki góðar fréttir....vonandi bra að allt gangi þér í hag. Hvernig væri svo að koma og kíkja á mann, verðum að fara að hittast.. ;)
en hafðu það gott kella mín...ég heyri í þér ;)
20.04.07 13:58
Já elskan ég held að allt sé ákveðið fyrirfram fyrir okkur og einhver ástæða er fyrir öllu.. Trúi því endalaust mikið ! Það var gott að heyra í þér þó ekki væri nema í gengum sms :) Þú ert ótrúlega sterk og þú ert snillingur í því að laga þig að aðstæðum sama hverjar þær eru!
Þú mannst að þér er boðið í grímu´partýafmæli annaðkvöld ;;) Þér er velkomið að taka Jóa og Freyju frænku með þér ;)
Þykir endalaust vænt um þig elskan :)
20.04.07 20:41
hæhæ rúsínan mín ... hvernig gengur íbúðaleitin?? Mig er farið að hlakka svo mikið til að komast heim til Íslands, aðeins sex vikur til stefnu :D .. við verðum svo að fara að hittast aftur á msn og spjalla! Miss you ..
21.04.07 11:55



