Föstudagur 27. apríl 2007 / 15:12 / Breyttir tímar...
Jæja. Núna eru svo sannarlega breyttir tímar hjá mér. Ég er samt enþá að vinna á Krummafæti hérna á Grenivík en í staðinn fyrir að búa í íbúðinni okkar í Melgötunni, bý ég hjá Ingólfi og Fjólu. Harpa dóttir þeirra var svo góð að lána mér rúmmið/herbergið sitt þannig að ég er í góðu yfirlæti hjá þeim ;)
Margt hefur breyst á tveimur vikum. Eiginlega bara allt. Ég sótti um í H.Í. í síðustu viku og aldrei að vita nema maður fái inn þar næsta haust. Þá er ég barasta farin suður á bóginn! Af mölinni og á malbikið. Merkilegt nokk. Hélt að það ætti seint eftir að gerast, en það verður eflaust magnað. Ég er búin að fá vinnu í sumar á Sambýlinu í Snægili sem ég var að vinna á sumarið 2005. Við Linda vinkona erum svo að leita okkur af einhverri ágætis íbúð á Akureyri til að leigja í sumar. Ef þið vitið um íbúð þá endilega hafið samband!
Í dag er ég hinsvegar að fara suður með flugi kl 18:40 og síðan til Danmerkur á morgun með leikskólagellunum. Djöfull ætla ég að skemmta mér vel og líka að versla mér smávegis drasl ;)
Jæja. Verð að rjúka. Er í vinnunni og þarf víst að passa einhver börn??!
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / skóli. Þar eru 20 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
Droppaði inn á síðuna í próflestrarpásunni minni. Brá mikið að sjá að þið Steini eruð hætt saman, en svona er lífið. Eitt er víst að sama hvað hlutirnir eru erfiðir þá er a.m.k. eitt sem maður fær út úr þeim og það er að verða sterkari og þroskaðri manneskja. Skemmtu þér nú vel í útlandinu.
Kv. Dagrún
Ps: Var að skoða gamlar myndir og rakst þá í myndirnar af okkur tveim og Helgu á leið til Egilsstaðar í fjórða bekk. Algjör snilldar ferð :)
27.04.07 21:32
Blessuð Hanna mín... Þið Jóna verðið nú að skemmta ykkur konunglega þarna í Danaveldi :) ég hef greinilega hætt aðeins of snemma, missi af þessari ferð... bömmer :/
Flott hjá þér að sækja um í HÍ, vonandi að það gangi allt upp :)
Jiiiii þið Linda að leigja saman, þá verður maður nú að droppa í heimsókn, alltaf glens og gaman hjá ykkur ;) bið að heilsa í bili kv. Alma Kristín
27.04.07 22:33
Vá það verður örugglega fínt að prófa suðurlandið aðeins...
Oh mér var boðin vinna á þessu sambýli og hafnaði ! Sá strax eftir því...
En er annars sátt í minni vinnu, það er ekki það, þess vegna neitaði ég.
Skemmtu þér vel í Danmörku elskan ! :)
27.04.07 22:38
sæl skvís
gaman að lesa að þú hafir ekki pakkað þér inn í sæng og lagst í dvala.. ekki það að maður ætti von á þvi. hanna mín, ég vil bara segja þér að þú ert ein af þeim sterkari sem ég þekki og ég veit ekki til þess að þú látir mótlæti mikið hafa á þig.. auðvitað tekur þetta á en haltu áfram að lifa lífinu eins og þú gerir og ég hlakka til að fá þig suður - alltaf gott að fá fleiri vini í nágrennið :) skemmtu þér nú ógó vel í danmörkinni góðu og spreðaðu vel í þig..
kær kveðja úr borginni
sandra p
27.04.07 23:42
hafðu það gott í denemark!! :D
verðum í bandi skvís!
28.04.07 10:22
úú mín bara að skella sér til Köben, ekki slæmt. En er eitthvað að frétta af íbúðaleit?? og Alma að sjálfsögðu verður þér boðið í heimsókn til mín og Hönnu, aldrei að vita nema við höldum nokkur góð teiti! ;)
28.04.07 16:01
jæja núna getur þú ekki kvartað yfir því að ég hafi ekki kvatt þig þegar ég fór austur um daginn....ekki kvaddir þú mig núna....snökkt#snökkt
30.04.07 00:07
Trausti:
vá hvað það hlýtur að vera erfitt að fara með öll börnin til Danmerkur. Ætli foreldrunum sé sama? BAMM BAMM
30.04.07 02:42
takk fyrir skemmtunina á sunnudaginn, þetta var dásamlegt þrátt fyrir snöggan endi.. Óli lifir ennþá á hetjudáðinni sem hann drýgði með þér og ég velti mér ennþá fyrir því af hverju ég fór eiginlega í þennan rússíbana! en hann var geðveikur!!
þú getur bókað það að við hefðum farið í hvorug þessi tæki ef þú hefðir ekki verið með! :D
..og Danni saknar þín!
knús - Dagný and the boyz
30.04.07 19:23



