Fimmtudagur 29. mars 2007 / 22:28 / ýmislegt
Ég er búin að fá tvö vinnutilboð með stuttu millibili. Bæði mjög áhugavert, annað eiginlega áhugaverðara en hitt... en mjög mikil skuldbinding. Margir gallar, en margir kostir við báðar vinnurnar. Veit ekki hvernig ég á eiginlega að snúa mér. Mikil heilabrot í gangi þessa dagana. Úff úff hef aldrei hugsað jafn mikið undanfarna daga.
Ég var í fríi í vinnunni í gær. Fór á þriðjudaginn til Ömmu Huldu útá Dalbæ. Amma eitthvað farin að þreytast á lífinu og orðin slöpp. Hún er nú 93ja ára gömul. Það var rosalega gott að vera hjá ömmu þó ég hefði nú ekki verið eins mikið hjá henni og ég vildi. En jæja, ég ætla aftur "yfir um" næstu helgi (yfir um þýðir sko heim á Hauganes - Yfir á Hauganes..) og þá hittir maður hana meira.
----
Yfir í annað.
Ég sló held ég heimsmet í dag. Ég fór út að skokka með Jónu og JÁ við skokkuðum! Jóna reyndar aðeins meira en ég. Við erum svo miklir nördar að þegar við vorum komnar heim þá urðum við endilega að keyra sömu leið á bílnum hennar Jónu til þess að mæla hversu langt við fórum! Júbb við skokkuðum 5.7km á rétt rúmlegum hálftíma. Snilld. Síðan tókst henni að draga mig...Í BLAK! Það var reyndar algjör snilld þó ég sé alveg dauð í handleggnum eftir allar uppgjafirnar. Ég er líka uppgefin ;)
Það er aldrei að vita nema maður geri þetta að vikulegum viðburði, að fara í blak. Það var alveg merkilega skemmtilegt þó maður hafi nú verið alveg áberandi lélegur og ég kunni varla eina einustu reglu! Alveg vonlaus :P
---
Framtíðar línurnar okkar fara á skýrast fljótlega. Eiginlega bara núna á miðvikudaginn. Þá ætti þetta að koma í ljós hvaða vinnu við tökum og hvernig við háttum hlutunum.Ég veit það allavega að mig langar í fjarnám næsta haust... og vinna með því.
Læt ykkur vita í næstu viku hvernig lífið hjá okkur fer. Gætu orðið dramatískar breytingar ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
freyja:
úúúúúúúúúúúúúúúúúúúú dramatískar breytingar..... en spennó!! Ég bíð spennt eftir framtíðaráformsfréttum.
Ég spila blak einu sinni í viku og finnst það algjört æði. Ég er ekkert sérlega góð en þetta er alveg ofboðslega gaman. Þetta er bara klukkutími sem við höfum og ég er alltaf jafn svekkt þegar klukkustundin góða er liðin. Haltu áfram að mæta (ef þér finnst þetta eins gaman og mér !!)
Har det bra á Grenivíkinni..... við kannski sjáumst á nesinu næstu helgi.... eða á tjúttinu......
kv. Freyja (þar sem öngvar dramatískar breytingar eru fyrirséðar)
01.04.07 21:12



