Sunnudagur 11. mars 2007 / 22:35 / ....

Þetta er bara orðið vikulegur viðburður hjá mér - alltaf bloggað á sunnudögum!? Ég fer bara að skrá þetta niður í dagbókina mína "sunnudagur; blogga!"
Nei nei, ég hélt ég hefði bloggað núna á miðvikudaginn eða fimmtudaginn (þessa brandara hérna fyrir neðan) en ég klúðraði því eitthvað og þetta kom bara ekki inná síðuna heldur var bara á stjórnborðinu. Því er hinsvegar reddað svo við höfum ekki meiri áhyggjur af því ;)
Ég skrapp með Freyju frænku, Elmu, Jónu, Dagný, Baddý og Karó á djammið í gærkvöldi. Dansaði samt örugglega meira með Ingu Rut, Elvu og fleirum hressum skvísum. Þóra: Það var GEGGJAÐ gaman að sjá þig og líka þig Hulda Berglind! :)
Þorsteinn fór til Vigga og horfði á Rocky mynd og einhverja tónleika á meðan ég dansaði á fullu á Kaffi Ak. Við lögðum af stað heim á leið svona 06:30 ... Þetta var geggjað gaman!
Við sváfum fram eftir hádegi og þegar við vöknuðum tók við einhver sú svakalegasta hreingerning sem ég hef framkvæmt í langan tíma. Þorsteinn skúraði hérna heima og ég er viss um að gólfið hefur aldrei nokkurntíman litið svona vel út! Ótrúlega flott hjá karlinum... algjör pro í þessu ;)
Í gær dunduðum við okkur aðeins í Hrísalundinum góða. Versluðum málingu og máluðum helling og tókum niður skrúfur og nagla og spösluðum uppí götin. Gríðarstuð. Erum samt ENGANVEGIN búin og þurfum að gera meira í vikunni. Ekkert samt að frétta af leigjenda-málum sem er nú verra :( Æji þetta reddast alltaf einhvernvegin...
Læt þetta nægja í bili. Samstarfsmenn mínir úr leikskólanum (leikskóla-skvísurnar) komu til mín í smá "klúbb" núna áðan. Svaka gaman að sjá þær svona utan leikskólans...
Löng helgi sem leið þó alltof fljótt. Það verður fínt að sitja bara fyrir framan sjónvarpið á morgun.. örugglega sofna yfir Melrose Place eins og venjulega ;)
Á föstudaginn næsta ætla þær mæðgur, Inga Rut og Júnía að koma í heimsókn og gista! íííkk ég er strax orðin spennt! :D


Þessi færsla er skráð í flokknum

/ Álit

Helga Kr.:

Takk fyrir síðast :)

12.03.07 16:19


Inga Rut:

já takk fyrir sporin :D hahahaah rosa gaman maður, fann múv sem ég vissi ekki að ég ætti til, ekki að segja að þau hafi verið eitthvað kúl :D HAHAHHAHAHA...
en já hlökkum líka til að koma til þín um helgina, rosa rosa gaman, held við ´ættum að taka allan pakkann á þetta elda rosa góðann mat með forrétt aðalrétt og eftirrétt, skrappa og taka smá gelgju módel störf þegar skottan er sofnuð ;) hehehe schniiiiiiilllld!!! hlakka svo til :D

12.03.07 16:32


Sigrún J:

Uss... held þú sért orðin duglegri að kíkja út heldur en ég... Alveg búin að missa áhugann á þessu !
Ég og vinkona mín erum hinsvegar að fara að hlada uppá ammlin okkar á dátanum 21 apríl og er ykkur Þorsteini boðið að mæta með góða skapið. Nánar auglýst síðar samt ;)
Taktu bara daginn.... hömm nóttina frá ;)

Heyrumst gella !
Spáðu í einu,, ég hef ekki séð ykkur síðan þið komuð heim. Skammast mín helling !

14.03.07 22:06


Inga Rut:

iss ætlaru bara að halda þig við það að blogga bara á sunnudögum.. ussuss svona fólk sko ;) hehehe
nei nei þú ert ágæt ;)
sjáumst á eftir skvísssssss...
hlakka muget til :D

16.03.07 14:20


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín