Fimmtudagur 22. mars 2007 / 17:49 / Memories!
Úff ég er alveg að missa mig í minningunum hérna. Erum að tæma geymsluna okkar sem við eigum á Akureyri. Erum að fá nýjan leigjanda sem ætlar að leigja geymsluna með. Kemur ekki að sök þar sem flest allt okkar drasl er hvort eð er komið hingað til Grensó. Ég er svona að dunda mér við að fara í gegnum þessa kassa sem ég hafði með mér úteftir í gær. Í þeim fann ég m.a. kassetturnar mínar síðan ég var svona 12-13ára! Jább... 10 ára gamlar! Úff smúff. Ég man meira að segja hvaða lög eru á hvaða kassettum! Svo fann ég líka Celine Dion diska, Mariah Carey, Cypress Hill sem Damma skrifaði einhverntíman handa mér (enda var hún alltaf á undan sinni samtíð, átti tölvu með skrifara örugglega fyrst allra á Norðurlandi!) og ekki nóg með það að hún hafi skrifað diskinn, þá teiknaði hún líka svona dissara-par framan á hulstrið! Æðislegt alveg hreint ;) Verð að sýna þér þetta við tækifæri Damma mín.
Ég er líka búin að finna fullt af ljóðum eftir mig og fleiri. Eitt snilldarljóð eftir Sunnu sem heitir "Föstudagurinn langi í lífi Jóhönnu" og fjallar á mjög dramatískan hátt um harm minn vegna dauða Þorsteins.. hann varð nefninlega fyrir bíl og blóðið slettist útum allt! Hádramatískt alveg hreint! ;) Hún samdi þetta þegar hún var 11ára, eða 2004.
Myndaalbúmin láta heldur ekki standa á sér. Líka árshátíðarmyndir, uppskrifta-hittings bókin okkar stelpnanna úr MA (Fimm Feitar, man einhver eftir því? hehe)
Svo er auðvitað ENDALAUST mikið af skóladóti, verkefni og fleira sem ég einfaldlega tími ekki að henda!! En afhverju að eiga þetta? Æji lífið er svo flókið stundum. Mannist svo heimskulegt að eiga fulla geymslu af drasli sem maður skoðar aldrei og notar aldrei, en samt vill maður engu henda! Stundum skil ég pabba, og hans 4 ísskápa, mjög vel!
----
Í kvöld er vorskemmtun hérna á Grenivík. Þetta var nú alltaf kallað "Skólaskemmtun" heima í Árskógarskóla, veit ekki afhverju þetta heitir vorskemmtun hérna, þar sem það er enþá vetur þegar þetta er! En allavega, þau ætla að sýna Kardimommubæinn. Verður eflaust svakalegt show ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Já, ljóðið eftir mig! Púff! Ég ætlaði ekki að trúa því þegar þú hringdir í mig og last það upp! Þvílík dramatík! Þetta er efni í heila mynd! En já... Vorskemmtun segirðu... Þetta heitir nú vorskemmtun því þetta var alltaf sýnt á föstudaginn áður en við fórum í páskafrí! En nú er víst búið að flýta þessu því að það eru víst svo margir að fara eitthvað í páskafríinu og mundu missa af því kannski og það er frekar erfitt, sérstaklega í svona stóru verki eins og Kardemommubænum..! En allavega, flott blogg:D
23.03.07 16:01
Hææ dúlla.. bara að skilja eftir mig smá spor..kíkka stundum hérna inn og les yfirleitt snilldar pistla hjá þér :) mér finnst fátt skemmtilegra heldur en að finna eitthvað svona gamalt og gramsa í ..gleymdar, gamlar góðar minningar.. en hafðu það rosalega gott :) knús..kv. Jóka
25.03.07 00:38
hæ hanna ---. hehe , þetta var alltaf jafn sniðugt:)
ég á einmitt við sama vandamál að stríða. draslið safnast upp hjá mér, en engu er hægt að henda! ofur pirrandi. stundum fer ég í gegnum búnkann aftur og aftur en hann minkar ekkert. svo tekur þetta heila eilífð, maður gersamlega sekkur ofaní þetta.
en allavegana,
bið að heilsa frá danmörku
sigurlaug dröfn
29.03.07 18:25



