Þriðjudagur 13. febrúar 2007 / 19:24 / Þorrablót í Árskógi

Vááá hvað það var ótrúlega gaman! Þorsteinn kom með mér (í fyrsta eða annað sinn, man ekki alveg) og Sigga og Galdi komu líka. Ásdís, Sævar og Co voru á næsta borði við hliðiná sem gerði þetta bara enþá skemmtilegra. Ég dansaði svo ógeðslega mikið að ég er enþá þreytt í fótunum.
Dansarnir við Gulla frænda voru ótrúlega skemmtilegir, sem og allir aðrir dansar! Ég þakka Guðrúnu og Hólmar alveg KÆRLEGA fyrir lánið á drivernum þeirra ;) Það var alveg magnað!
Ég tók endalaust margar myndir sem ég ætla að setja inn í kvöld.
Það hefði nú samt verið enþá skemmtilegra að hafa Baddý systir þarna, Dömmu, Hófý, Elvu.. alla þessu gömlu góðu vini ;)
Jæja. Ætla að fara að hlaða inn myndum
Þangað til næst..


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

Hófý:

jámm, ég var að farast úr eirðarleysi um það leiti sem borðhaldið var að byrja, EN! ég mæti á næsta ári ef ég fæ góða barnapíu :)

13.02.07 22:22


Ásdís:

takk fyrir síðast hnoðrinn minn:)

13.02.07 22:46


Guðrún:

Það var nú minna en allt;) ég fer líka að henda inn myndum vonandi í kvöld ... jeeeedúdda hvað þær eru margar .... :)
Þú kíkir bara á bloggið mitt þar verður slóð á þær:)
Takk fyrir frábært kvöld ...

14.02.07 15:15


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín