Sunnudagur 04. febrúar 2007 / 19:36 / Myndir myndir myndir
Jább ég er búin að setja inn myndir af þorrablótinu og þær er að finna hér. Þær eru í albúmi sem heitir "2007" og þar eru myndir frá sveitaferðum í Laufás ofl skemmtilegt.
Helgin er búin að vera alveg svakalega góð. Ég fór í bæinn í gær til Ragga bró og Söndru. Alltaf gott og gaman að fara til þeirra, þó ég hitti þau nú alltof sjaldan :(
Þorsteinn Ingi ákvað að koma með okkur til Grensó, eiginlega til þess eins að spila FIFA með Þorsteini Björns. Ég fór bara snemma í bólið og þeir spiluðu FIFA fram á nótt :)
Á Laugardaginn fengum við svo Hörpu og Karen til að passa fyrir okkur hann Nick. Við fórum út að borða með Vigga vinnufélaga Þorsteins og Þóru kærustunni hans. Síðan skelltum við okkur í bío og horfðum á hálfsjötugann karlmann vera laminn í hringnum. Jább - við fórum á Rocky Balboa! Það var ágætis skemmtun. Nick hinsvegar hafði það miklu betra hérna heima. Stelpurnar dekruðu við hann og át hann meðal annars hálfa pizzu. Reyndar átti hann ekkert að borða hana - en þegar stelpurnar gleymdu henni á eldhúsborðinu þá stóðst hann ekki freistinguna. :)
Dagurinn í dag hefur bara verið eintóm leti leti leti. Ekkert að gera og ekkert gert í því að finna sér eitthvað að gera. Stelpurnar gistu og vöktu okkur um hádegisbilið! Njótum þess að sofa út saman loksins þegar tækifærið gefst!
Núna held ég samt að nóg sé komið af letilífinu og ég verði að fara að drífa mig í ræktina. Taka mig á í matarræðinu og hafa Jónu vinnufélaga minn fyrir fyrirmynd! ;)
Þorrablót heima í Árskógi næstu helgi og ég get varla beðið! Algjör snilld... bara spurning í hverju maður á að fara??!!!! Er einhver sem býður fram flottann kjól eða eitthvað flott?
Þessi færsla er skráð í flokknum myndablogg. Þar eru 51 færslur.



