Föstudagur 16. febrúar 2007 / 17:33 / Myndir!
Jæja Inga mín.. eftir kommentið frá þér þá ákvað ég að drífa loksins í að setja myndirnar inn. Það eru nokkrar góðar af þér ;)
Þær eru allar hérna.
----
Þormar er kominn til okkar. Hann kom í gær og gekk fyrsti dagurinn vel. Hann æsir samt Nick alveg svakalega upp.. og Nick æsir Þormar alveg svakalega upp! Góð blanda þar ;)
Í dag kom hann svo eftir hádegi með Þorsteini í leikskólann. Þorsteinn var svona "aukafóstra" frá 1-3 í dag og gekk alveg frábærlega. Reyndar var hann mest með Þormar svo að það var fínt. Það voru 5 börn í leikskólanum milli 3-4 í dag.. mjög rólegur dagur.
Á morgun ætlum við svo að sjá Skoppu og Skrítlu í Rýminu hjá LA.
Það er langt síðan ég fór síðast í leikhús og því verður gaman að sjá þetta vonandi-skemmtilega barnaleikrit.
Jæja. Best að halda áfram að horfa á fuglastríðið í Lumbruskógi! Það minnir mig alltaf á frænkur mínar í Hlíðskógum, Bárðardal. :)
Góða skemmtun við myndaskoðun og endilega muna að kommenta undir myndirnar!
p.s. Freyja - geggjaðar myndir af þér og Gulla!
Þessi færsla er skráð í flokknum myndablogg. Þar eru 51 færslur.
/ Álit
freyja:
Já Hanna, snilldarmyndir..... það að dansa við Gulla er nattúrulega alls ekkert eðlilegt. Ég skora á allar konur að prófa að dansa við hann án þess að svitna.... shjetttttt, ég púðraði mig svona tuttugu sinnum þegar ég dansaði við hann..... ég var eins og risavaxið jójó í höndunum á honum.... hápunktur kvöldsins.....
að vera talin konan hans pabba var ekki svo hátt uppi, þó að pabbi sé alveg yndislegur, þá er ég samt of ung fyrir herramenn á hans aldri! Unless he´s filthy rich skiluru!!
16.02.07 21:39



