Mánudagur 05. febrúar 2007 / 19:13 / Líkamsræ

Ég var að horfa á Prison Break áðan í tölvunni.
Reyndar var ég að horfa á 3 þætti af Prison Break - díses þetta er svoooo spennandi!
Síðan ákvað ég að skella mér bara í síðbrók og íþróttabuxur, íþróttatopp, hlýrabol, bol, peysu og úlpu. Skellti á mig eyrnabandi frá 1990 (fallega fjólublátt) og vettlingum, setti ólina í Nick and of we went!
Ég fór semsagt út að labba/skokka/hlaupa áðan. Fór stóra hringinn + frystihúshringinn áðan og endaði á spretti upp götuna milli stórasvæðis og Melgötu. Tók meira að segja svona launches eða bóndagönguskref eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir á íslensku. Þegar ég kom heim fór ég viðstöðulaust í 30sec ISO-Abs og svo magaæfingar og armbeygjur. Núna er ekkert elsku mamma lengur og fyrst ég kemst ekki strax í ræktina þá ætla ég bara að reyna að vera dugleg að gera eitthvað sjálf. Veit að það er ekki eins gott og ræktin, en virkar á meðan það er eitthvað annað en að vera sófaklessa. Nick var líka ánægður með árangurinn hjá eigandanum og hljóp sáttur við hlið mér.. og á undan mér ;)
Núna líður mér alveg ótrúlega vel, bæði á líkama og sál. Yndislegt alveg hreint. :)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífstíll og matur. Þar eru 20 færslur.

/ Álit

dagný:

frábært hjá þér! hver segir að maður þurfi einhverja sveitta búllu til að halda sér í formi?? vildi óska að ég hefði allavega helming af dugnaðinum sem þú ert með! :)

05.02.07 20:01


hanna:

Iss Dagný, þú mátt segja að ég sé dugleg þegar ég geri þetta aftur! Og ef ég geri þetta í þriðja skiptið þá er ég dugnaðarforkur... hehe ;)

05.02.07 21:52


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín