Miðvikudagur 07. febrúar 2007 / 22:28 / Leeeheiiiðist!
Það er svo skrítið að búa hérna á Grenivík. Mér líkar mjög vel við staðinn og mjög vel við fólkið hérna, en OMG hvað mér leiðist! Ég hangi hérna heima eftir vinnu og geri ekki rassgat. Reyndar lýg ég því. Ég er t.d. mjög mikið í tölvunni og svo er ég líka dugleg að horfa á sjónvarpið! ;)
Í dag hef ég samt gert óvenju mikið. Gengið frá þvotti, þvegið þvott, hengt upp þvott, vaskað upp, lagað til, lagað til í fatahenginu frammi, farið út að labba með hundinn, farið í búðina... and the list goes on.
Ég skrapp líka í heimsókn til Sólveigar nágranna og vinnufélaga (bý í parhúsi og hún er í hinum endanum!) Á meðan skyldi ég Nick eftir einan heima. Það hefur gengið hálf brösulega að hafa hann einan heima og síðast skyldi ég hann eftir í klst á meðan ég fór í nudd (Til Soffíu sem býr beint á móti.. ég er alveg uppáþrengjandi á nágranna mína hehe) og hann vældi og gelti allann tímann. Sólveig var alveg að verða geðveik greyjið. Núna skyldi ég hann EKKI eftir í búrinu heldur leyfði honum að vera lausum (lokaði inní öll herbergi og inná bað) og setti nammi útum allt. Undir sófaborðið, bakvið sjónvarpið, undir kistilinn, ofaná skenkinn... you name it. Hann dundaði sér svo við að þefa uppi nammi og ég heyrði bara 2 gelt frá honum í þennan klukkutíma sem ég var í burtu! Það er skárra en klst af gelti og væli!
Jább þetta er allt að koma.
Við ætlum líka suður núna 23.febrúar á hundanámskeið. Læra að verða betri eigendur og læra að þjálfa Nick upp í því sem honum finnst skemmtilegast - t.d. að þefa! ;)
----
En allavega. Ástæðan fyrir þessu bloggi mínu er þessi skemmtilegi listi sem ég rakst á. Hann er reyndar stuttur og margt við hann að bæta, en mér fannst hann samt sem áður alveg frábær og sérstaklega gaman að lesa kommentin! Komment nr.7 er t.d. ALGJÖR snilld! :D
----
Svo vil ég líka benda á þetta blogg. Óli Helgi mágur var semsagt að byrja að blogga í dag. Til hamingju með það Óli minn! Ég mun án efa skoða bloggið á hverjum degi!
Þessi færsla er skráð í flokknum heimilið. Þar eru 25 færslur.
/ Álit
Hófý:
langaði bara að kvitta :)
það er svo agalega leiðinlegt þegar engin segir neitt :)
12.02.07 21:13
Hæj! Ég er örugglega að koma norður um helgina... ég var að spá hvort við ættum ekki að skella okkur saman í ræktina og ég kenna þér á prógramið!!!!???? Endilega láttu mig vita ef þú hefur tíma.....
13.02.07 10:48



