Laugardagur 17. febrúar 2007 / 18:42 / Laugardagsleti
Við erum búin að hafa það virkilega gott og gaman í dag. Við fórum ekki á lappir fyrr en kl 11 þó við værum búin að vera vakandi þónokkuð lengi að horfa á Bubba Byggi. Eða "Buggi Byggir" eins og Þormar segir :)
Síðan gerði ég hafragraut handa liðinu og við fórum svo til Akureyrar að sjá Skoppu og Skrítlu. Það gekk alveg vonum framar og Þormar skemmti sér manna best. Allavega var hann duglegur að hlæja og fylgjast með. Eftir það tók við rúntur til og frá um bæinn þar sem við versluðum hitt og þetta, aðallega þetta. Þegar heim var komið var Þormar á útopnu eftir svona langa setu og hljóp um eins og brjálæðingur. Við ákváðum þess vegna að fara í smá göngutúr. Það breyttist hinsvegar í rúmlega klst fjöruferð og skemmtileg heit! Ég er enþá á bömmer yfir því að hafa gleymt myndavélinni!! Þormar t.d. datt í fjörunni og svo kom stóóór alda og náði honum. Menn voru ekki alveg sáttir þá! ;) Það er samt búinn að vera aðal saga dagsins svo þetta var nú ekki alslæmt. Núna situm við með nammipoka úr Hagkaup að horfa á Eurovision. Þormar er sofnaður núna enn átti alveg ÆÐISLEGT móment hérna í kvöld. Allt í einu tók hann uppá því að byrja að dansa við "Þú tryllir mig", fór fyrir framan sjónvarpið og dillaði sér.. og svo tók hann bara undir hástöfum "ÞÚÚ TRYLLIR MIIIGG!" og það besta er að ég náði því á video! :D Æðislegt :) :)
----
Ég vil samt óska afmælisbarni gærdagsins til hamingju með afmælið. Dagný Anna elsku sæta frænka mín varð 8.ára í gær og hélt uppá það í dag, en því miður komst ég ekki :( En ég verð bara að taka rúnt til Húsavíkur einhvern daginn! :D
Svo eru fleiri afmæli á döfinni. Helga Kristín á afmæli á morgun... reyndar heyrði ég í henni í dag og hún var orðin veik :( Úbbs ekki skemmtilegt það! Sandra mágkona á líka afmæli á morgun!
Til hamingju báðar tvær! :D :D
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Skemmtilegt blogg:D Á samt ekkert að minnast á tiltektina? ;D Hehe;D
18.02.07 12:14
hehe.. bara fyndinn! :D
Annars bara kvittkvitt og hlakka geggjað til að sjá þig á fimmtudaginn :D
veðum í bandi skvís!
Love ya
Aníka
19.02.07 22:42
Hæhæ, ákvað að kvitta smá :) Hehe... þetta hefur verið góður dagur :)
Heyrumst sæta :)
23.02.07 16:54



