Laugardagur 24. febrúar 2007 / 20:22 / Hundanámskeið

Góðan og blessaðan! Vika síðan ég skrifaði síðast. Uss uss að þetta skuli gerast! ;)
Við erum semsagt stödd í Reykjavík. Nánara tiltekið á Nýbýlaveginum hjá Völu og Kristni. Erum þar í mjög svo góðu yfirlæti. Vorum að koma heim frá Pizzaria Rizzzo. Mhh það var góð pizza.. Reyndar engin svakaleg þjónusta, en so what. Sama er mér!
Núna situm við með sunnlenskan "þeyting" fyrir framan okkur (Bragðarefur) úr svona hálfgerðum "Brynjuís". Nammi namm..
---
Hundanámskeiðið í dag gekk alveg rosalega vel. Nick stóð sig eins og hetja og þetta var mjög svo forvitnilegt. Fengum klikker og töfrasprota til eignar (tvennt af hvoru) og hann tók vel við æfingunum. Morgundagurinn verður einstaklega skemmtilegur þar sem við munum bara gera æfingar, eins og t.d. hoppa yfir stangir, hringja bjöllu, stíga á mottu og fleira skemmtilegt.
---
Jæja. Spaugstofan er byrjuð þannig að ég verð að hafa athyglina á því ;)


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur. / vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.

/ Álit

freyja:

sakni sakni sakn

Jæja, fer ekki að koma að samverustund mín kæra.... eru þið lengi í borginni?
Ég heyri í ykkur, þarf bráðnauðsynlega að koma lökum til ykkar..... er það ekki?

heyri í þér sæta

26.02.07 12:58


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín