Þriðjudagur 09. janúar 2007 / 10:28 / Sama farið...

Þessa dagana er maður eiginlega alveg fastur í sama farinu. Ég kem heim úr vinnunni og þá fer Þorsteinn í vinnuna. Ég horfi á Bev.90210 og fer svo út að labba með Nick í svona klst. Eftir það hangir maður heima, föndrar, saumar, skrifar uppskriftir í bók, horfir á sjónvarpið eða skreppur til tengdó. Kvöldmaturinn samanstendur af gríðarlegri hollustu, eða samlokum, cheeriosi, kjúkling, pasta eða einhverju álíka merkilegu.
Í gær var samt brugðið útaf vananum og farið í afmæli í Laufás. Þar voru tvö læri í boði (ekki reyndar læri húsfreyjunnar þó þau séu vafalaust ágæt!) og meðlæti. Í eftirmat var kaloríu-inntaka vikunnar, eða rjóma/ís/kókosbollukaka með nóakroppi og jú, jarðarberjum! Mhh þetta var syndsamlega gott! Namminamm
----
Manni finnst nú hálf ómerkilegt að halda úti heimasíðu eftir að maður kemur heim frá USA. Maður hefur einhvernvegin ekki frá neinu merkilegu að segja!!
---
Þessi helgi var algjör útivistarhelgi! Á laugardeginum löbbuðum við uppá Höfðann með Baddý systir, Siggu Systir mömmu og Birnu dóttur hennar (við=ég, Þorsteinn og Nick)
Það var ekkert smá gaman og vorum við bara rétt rúmlega klst upp og niður. Alveg frábær gönguferð.
Á sunnudeginum fórum við í brekkuna hjá Jarlstöðum og renndum okkur á sleðum, snjóþotum, þoturössum, eigin rössum,snjóbrettum, skíðum og bara því sem okkur datt í hug! Túngötu-fjölskyldan var að sjálfsögðu með í för og kom Galdi með snjósleðann og fékk maður aðeins að reyna á upphandleggsvöðvana með nokkrum hringum á snjósleðanum þar sem ég sló algjörlega í gegn sem frábær vélsleðaökumaður! :D
---
Það eru nú ekki margir búnir að koma í heimsókn til okkar á Grenivíkina. Algjör synd ;( Þið verðið nú að fara að drífa ykkur sem flest í heimsókn til okkar! Núna snjóar og snjóar og þá er um að gera að hafa með sér vetrargallann og finna barnið innra með sér og leyfa því að brjótast út í smá stund á meðan við rennum okkur, löbbum og bara gerum einhvern andsk...
----
Hanna Krummafótur kveður!


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

dagný:

ohh... það fer nú nett öfund um kroppinn núna, hér enginn snjór, engir ættingjar.. hvað þá Höfðar..
vertu ekkert að minnka þetta blogg þitt samt, það er örugglega alveg jafn merkilegt að lesa hvað gerist á grenivík eins og í henni californiu.
spurning um að breyta heimilisfanginu sínu á síðunni samt ;)

09.01.07 13:43


Inga RUt:

fæ ég ekki plús fyrir að vera búin að koma.. með þeim allra fyrstu meirað segja ;)

komum samt bráðum aftur skvís ;) sjáumst um helgina.. :D

09.01.07 17:43


Helga Kristín:

heyhey beauty, jæja held þú verðir bara að fara í bæinn, mig vantar fleiri kvöldgöngur, dem manni líður eins og þú sért ennþá úti, hittumst svo hrykalega sjaldan og ekki verða skitpin fleiri núna, víst skólin er byrjaður og þú byrjuð að vinna;(
ja well ætla að halda áfram að læra fyrir próf á morgun...bæjó

kv. Begga bína

10.01.07 13:38


freyja:

Hæ elskan mín...... jiiiii, ég er ekki enn búin að heimsækja þig..... hvað er að mér!
Ég kannski vil ekkert skila öllum lánshlutunum þínum svo að ég er ekkert að flýta mér ;) ´
Ég verð að bæta úr þessu hið snarasta!!

Heyri í þér gella!!

F

10.01.07 22:48


Helga Kr.:

Sæll Jóhanna Krummafótur!!
Vonandi ert þú samt ekki alltaf í krummafót... á göngunni - örugglega ekki mjög þægilegt til lengdar... :)
En nú færðu að reyna það að vegalengdin til Grenivíkur er alveg hryllilega löng!! og miklu lengra til Grensó en frá Grensó.... :/ Ekkert mál fyrir Grenvíkinga að skreppa 2-3 ferðir í bæinn á dag, en að skreppa til Grenivíkur er nú meira en að segja það!! Eða það er amk mín reynsla... og
þetta er skot á alla þina og ykkar vini á Akureyri!!
Hafið það gott ;)
Kv, Helga Kr.

11.01.07 15:07


baddy:

já það er alveg nauðsynlegt að eiga svona útivistardaga. dæmigert að það skuli byrja að snjóa eftir jólin þegar maður hefur ekki lengur tíma til að "hanga" í snjónum og skemmta sér!!! en ég mun pottþétt láta sjá mig hjá ykkur eitthvað eftir verknám, ekki spúddí!

12.01.07 02:03


Heiða:

Sæl og blessuð og takk fyrir síðast:) Já ég öfunda ykkur sko heima á Grenó, að geta tekið fram þoturassana og rennt sér niður holt og hæðir:) hér er bara rok og rigning alla daga:(
En bið að heilsa, Kv. Heiða

15.01.07 14:51


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín