Sunnudagur 28. janúar 2007 / 14:30 / Þorrablót!
Þorrablót Höfðhverfinga var í gær og tókst alveg frábærlega vel upp. Skemmtiatriðin voru alveg hreint mögnuð, maturinn góður (hangikjöt, harðfiskur og flatbrauð...getur varla klikkað!) og dansinn dunaði til 3 í nótt.
Mamma og pabbi fóru með okkur og sátum við hjá tengdafjölskyldunni minni.
Við tókum alveg helling af myndum - en eigum eftir að fara í gegnum þær og birtum aðeins þær sem eru birtingarhæfar ;)
Ég vil bara þakka öllum kærlega fyrir skemmtunina! Sunna, takk fyrir alla dansana - þú stóðst þig frábærlega!! Damma; Takk fyrir alla brandarana ;)
-----
Gærdagurinn var líka frábær. Það vildi nefninlega þannig til að mamma mín átti afmæli!! (Til hamingju mamma!) kellan mætti auðvitað á svæðið með FULLT af kræsingum og gerðum við okkur glaðan dag. Sigga móðursystir og hennar family kom og líka tengdaforeldrar mínir og Sunna. Við sóttum líka afgangsdót sem við áttum hjá Freyju frænku. Skenkurinn er kominn í stofuna og tekur sig alveg rosalega vel út.
Hún lánaði okkur líka rúm sem er 140 á breidd þannig að núna geta Fjórir gist hérna hæglega! Erum reyndar líka með einbreitt rúm í okkar herbergi sem Þormar svaf í. Nægt er plássið...
Bara ef einhver færi að láta sjá sig hérna!!
---
Freyja, þú manst! Kemur með lök og bjór við fyrsta tækifæri! Mamma var að koma með Twister-spilið.. geggjað stuð! ;)
Þessi færsla er skráð í flokknum vinir og vandamenn. Þar eru 32 færslur.
/ Álit
freyja:
Ég gleymi nú ekki svona ákvörðunum!!! Hlakka til ;) Ég þarf bara að fá dagskránna þína, ég er að fara í partý næsta laugardag en annars á ég fullt af lausum tíma ;)
28.01.07 15:24
freyja:
Ég gleymi nú ekki svona ákvörðunum!!! Hlakka til ;) Ég þarf bara að fá dagskránna þína, ég er að fara í partý næsta laugardag en annars á ég fullt af lausum tíma ;)
28.01.07 15:24
oohhh, hefði viljað vera þarna! Greinilega mikið fjör! Gott að vita að það er nóg pláss þegar við komum í heimsókn (ath ÞEGAR!)
:)
28.01.07 18:46
Já, takk sömuleiðis fyrir dansana;) Sérstaklega fyrir valsinn sem við dönsuðum þarna þrjár, ég mamma og þú:´D Haha;) Snilld;) Gott kvöld og bara, til hamingju með að vera komin með netið;D
28.01.07 19:22
Hæ sæta.. ætla bara að kasta á þig kveðju og óska þér til hamingju með múttuna! :D
Heyri í þér skvís!
30.01.07 23:22
Hófý:
langaði bara að kvitta aðeins :)
01.02.07 09:30



