Miðvikudagur 24. janúar 2007 / 16:26 / Nick
Það er alveg hreint yndislegt líf að eiga hund. Ég get nú samt ekki leynt því að oft er það drulluerfitt!
Nick t.d. dregur mig út að labba 2x á dag, þ.e.a.s. eftir vinnu. Við förum alltaf í einn stuttann göngutúr eftir vinnu og einn langan um kvöldið, eða öfugt ef það er gott sjónvarpsefni ;)
Nick vill líka athygli. Hann er ekkert skárri en grenjandi smábarn þegar hann tekur sig til. Hann er samt mjög klár og geltir ekki nema hann vilji eitthvað sérstakt, og veit alveg nákvæmlega hvað hann kemst upp með að gera og hvað ekki. Eiginlega kemst hann samt upp með allt hehe
Ég er samt alltaf pínu smeyk við hann. Ekki að hann sé svona grimmur, nei af því að allstaðar sem ég les um þessar tvær tegundir, þar stendur að þetta sé hundur fyrir vana hundaeigendur, því þeir eru svo klárir að þeir eru fljótir að finna það ef þeir eru klárari en eigendurnir!
Þetta stendur t.d. um Parson Russel Terrier
-----
Parson Russel Terrier er hress, ánægður og elskulegur hundur.. Hann er hlýðinn en algjörlega laus við alla hræðslu.
Hann elskar að leiki og að leika sér með einhverskonar leikföng. Vinalegur og yfirleitt góður við börn, þ.e.a.s. ef að búið er að kenna börnunum að umgangast hundinn rétt. Þeir eru gáfaðir, viljasterkir og ákveðnir. Þeir geta verið frekar erfiðir til þjálfunar og þurfa ákveðin, vanan þjálfara. Parson Russel Terrier getur verið árásargjarn á aðra hunda ef hann er ekki vanin strax við aðra hunda. Svona hundar hafa drepið í slagsmálum, eða verið drepnir.
Þeir eru með gríðarlega sterkt veiðieðli (meiri en aðrir Terrier hundar) og það ætti ekki að treysta þeim með litlum dýrum. Þeir elska að elta og kanna. Varist að leyfa þeim að hlaupa frjálsum nema þeir séu mjög vel þjálfaðir.
Þeim finnst gaman að gelta og grafa. Þeir verða oft eirðarlausir og fá sterka eyðileggingarhvöt ef maður heldur þeim ekki uppteknum og vel hreyfðum. Parson Russel Terrier getur klifrað, sem þýðir að þeir geta klifrað yfir girðingar og þeir geta líka hoppað! Parson sem er 30cm á hæð getur auðveldlega hoppað 150cm upp í loftið!
Þetta er STÓR hundur í litlum líkama. Eigandinn þarf að vera ákveðnari en hundurinn, eða þá að hundurinn mun taka öll völd. Þetta er ekki hundategund fyrir óvanan eiganda. Réttur eigandi getur auðveldlega látið hundinn blómstra, en ekki er mælt með því að fólk fái sér svona hund ef það hefur aldrei átt terrier áður.
-----
Nick getur svo sannarlega klifrað. Þorsteinn skyldi hann efitr inni á meðan hann fór út að moka fyrir hurðinni, og þegar hann kom inn aftur (eftir svona 5mín) stóð Nick á miðju eldhúsborðinu!
Hann stendur líka uppí sófa með afturlappirnar og framfæturnar á sófaborðinu í leit að einhverju ætilegu! Í gær gleymdi ég smá nammiskál (ég veit ég veit, nammi skammi) á stofuborðinu og þegar ég fór að sækja hana þá lá hún í fanginu á Nick,.... í sófanum!
------
Við erum komin með glæsilegt búr undir hann til að hafa hann í þegar hann er einn heima. Við erum líka að fara í gegnum rosalegt búr-prógram svo honum líði nú sem best þegar hann er einn heima.
Eins og stendur í textanum þá verður Nick algjör skæruliði ef við fylgjumst ekki með honum og við erum hrædd um að ef hann er einn heima í svona klst þá finni hann sér eitthvað að gera.... eins og tæta pullurnar í sófanum!
----
Ég gæti skrifað endalaust langt um þennan yndislega hund. Hann veitir okkur ómældan félagsskap og stundum slekkur maður hreinlega á sjónvarpinu til að fylgjast með honum leika sér, eða til að leika við hann.
----
Hann er ekki nema rúmlega 4ra mánaða en hann kann núna strax að setjast, heilsa, leggjast og skríða! Mér finnst það nú bara ansi gott ;)
-----
Jább hann Nick er sannarlega frábær hundur!
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur.
/ Álit
freyja:
Hundar eru yndislegir..... flestir, rétt eins og við mannfólkið. Uppeldið er oftast lykillinn.... þið greinilega standið ykkur vel fyrs hann er farinn að gera allskonar (hunda)kúnstir ( ahaha hahahah hahaha hóst hóst)
Hlakka til að hitta gullið ykkar, jú og ykkur skötuhjú.
24.01.07 17:30
Ásdís:
HÆ skvís við verðum að fara að hittast þetta gengur ekki.
24.01.07 23:39



