Fimmtudagur 04. janúar 2007 / 15:16 / Gleðilegt ár 2007!

Jæja. Þá er komið nýtt ár með blóm í haga og syngjandi fuglum... eða svona næstum því þar sem það er nánast snjólaust hérna á Grenivík þó kuldaboli sjáist nú samt annað slagið.
Við erum semsagt alveg búin að koma okkur fyrir á Grensó, þó við eigum enþá eftir að sækja nokkra hluti til Freyju okkar ;) Enda ætlumst við eiginlega frekar til þess að hún komi með þá til okkar!!! :D Verður að fara að drífa þig í heimsókn fröken Freyja! ;)
Ég byrjaði núna 2.jan að vinna í Krummafæti sem er leikskólinn hérna. Það er alveg frábært að vinna hérna, 25 börn og 4 starfsmenn (+ afleysing og matráðskona)
Börnin eru öll alveg afskaplega ljúf og er ég búin að vera núna með yngstu krökkunum í samveru. Minn hópur er samt mið-hópurinn eða Danni frændi (hennar Siggu systir mömmu) og þeir félagar :) Mjög fínn hópur og fyrsta hópastarfið mitt gekk mjög vel þó það væri enganvegin undirbúið!! ;D Hehe
Dagarnir líða því frekar hratt núna. Ég kem heim úr vinnunni, og þá fer Þorsteinn í vinnuna! Ég er svo sofnuð þegar hann kemur heim og farin þegar hann vaknar. Mjög gaman eða þannig. Ég og Nick erum því ein heima mest öll kvöld og förum út að labba og kúrum í sófanum... jább hann má koma uppí sófa hjá okkur! Annað er bara ekki hægt þegar maður er alltaf einn heima :S :)
Jæja. Pásan mín hérna í leikskólanum er að verða búin, sem og vinnudagurinn (búin 16:15) þannig að ég læt gott heita í bili.
Gleðilegt ár allir!!


Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur. / Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur.

/ Álit

Aníka:

hæ sæta!! og gleðilegt ár.. ég hef ekkert heyrt í þér yfir hátíðarnar! En eigum við ekki að stefna á hitting um helgina! :D við verðum alla vega í bandi.. ég heyri í þér á morgun skvís! :D

-later!

04.01.07 22:51


Sigrún J:

Elsku Hanna mín.
Gleðilegt ár og takk fyrir gamalt og gott :)
Þykir nú allatf jafnvænt um þig!

06.01.07 22:42


Inga RUt:

verðum að fara að kíkka á þig og skrappa pínu ;) hehhe

sjáumst vonandi um helgina í afmælinu hjá Júnsu ;)

07.01.07 22:07


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín