Miðvikudagur 17. janúar 2007 / 14:27 / Ekkert net

Það er svo ótrúlega asnalegt að hafa ekki nettengingu heima. Samt erum við búin að setja upp heimilistölvuna OG eigum líka glænýja og fína fartölvu sem er sjaldan notuð (nema til að horfa á My Name is Earl sem er í miklu uppáhaldi núna! -- Takk Baddý!!)
Ég þarf eiginlega að hafa samband við emax aftur og fá þá til þess að renna hingað úteftir og setja þetta upp fyrir mig sem fyrst. Maður er enganveginn tengdur við umheiminn!
Jæja, þá er ég hætt þessu kvarti.
Héðan frá Krummafæti er allt gott að frétta. Það er allavega mitt "plug" við umheiminn! ;)
Hvað á ég að segja meira...
Gærdagurinn var frábrugðinn öðrum dögum. Ja hérna hér. Ég fór á göngu eftir vinnu og bjóst sko ekki við því sem koma skyldi. Ég skrapp líka til tengdó þar sem síminn hringdi fljótlega eftir að ég var komin þangað og það var símtal til MÍN! Ég varð auðvitað alveg steinhissa þegar þetta var hún Hóffa leikskólastýri og hélt ég kannski að hún væri að segja mér upp.. já eða gefa mér launahækkun! En allt kom fyrir ekki. Hún átti bara í vandræðum með son sinn sem var víst "fastur" á Akureyri. Ég renndi því til Akureyrar um kvöldmatarleytið!!! Já geri aðrir betur! Mér finnst eins og það sé heil eilífð síðan ég fór síðast til Akureyrar... fór reyndar þangað á föstudaginn en það er annað mál.
Ef ég færi ekki stundum á bílnum í vinnuna þá kynni ég eflaust ekki lengur að keyra! Alveg svakalegt.
Ég fór svo á kynningu til hennar Hóffu eftir Akureyrar-sækjið mitt og prófaði allskonar Aloe-Vera vörur. Keypti samt ekki neitt þar sem fjárhagurinn er frekar mikið skakkur um þessar mundir.
----
Það er búið að snjóa alveg heilan helling hérna á Grensó. Svo mikið að í fyrradag þá áttum við Þorsteinn EKKERT STÆÐI til að leggja bílnum! Ég stoppði bara í miðri Melgötunni (það var bara búið að moka eina rönd í gegn) og Þorsteinn hljóp beint útí bíl og brunaði í vinnuna áður en við myndum stífla alla umferð um Melgötuna (já, hlæið bara, en það er í alvöru stundum umferð á Grenivík!!!) Ég tók mig svo til og MOKAÐI ruðningana í burtu og gerði smá svona "stæði" þannig að þegar Þorsteinn kom heim úr vinnunni þá gaf hann bara allt í botn og þrumaði inní stæðið okkar. Í gær var hinsvegar klárað að moka svo að núna er allt fínt í Melgötu 4a.
---
Lífið mitt er greinilega orðið frekar innantómt þar sem ég skrifa ekki um neitt nema snjómokstur og bæjarferðir!
---Hjálp! Ég held að ég sé að breytast í aðþrengda, Grenvíska eiginkonu!!!-----


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur. / heimilið. Þar eru 25 færslur.

/ Álit

Nanna:

Hellú, farðu að senda mér upplýsingarnar kona... þá færðu nóg að gera... ;)

17.01.07 20:41


freyja:

hæ elsku Hannan mín. Ég VERÐ að heimsækja þig fljótlega...... hvað ertu að gera annað kvöld? Ég hringi í þig á morgun......
Annars langar mig að vara þig við Emax, mamma og pabbi voru með tenging þar, ekkert að virka, fóru 3 eða 4.sinnum með tölvuna inneftir í viðgerð þar sem "ekkert var að nettengingunni" en svo kom í ljós að það var ekkert að tölvunni. Ég veit ekki hvernig netið er hjá þeim núna en það liðu alveg mánuðir þar til eitthvað gerðist. Emax-fólkið var ekkert feimið við að rukka fyrir allan netlausa tímann og vildi ekki viðurkenna að það væri neitt að hjá þeim. Það voru nokkrir heiman að sem voru með tengingu þar og hringdu og kvörtuðu, það var alltaf í "fyrsta skipti" sem þeir heyrðu af því. Vonandi er þetta betra núna...... :/
leitör beib!!

17.01.07 22:54


Hanna:

Nanna: Já ég verð að fara að senda þér. Það er bara svo mikið ves eitthvað þar sem upplýs.eru í tölvunni minni heima sem er ekki nettengd ;(
Freyja: Já ég veit að emax sökkar feitt, en þetta er það eina sem er í boði!!! Svona er að búa á Grenivík. Það er reyndar það sama á Hauganesi. Þetta er það eina sem að svona krummaskuð ná af interneti :(

18.01.07 15:18


Gams:

Ég og Damma erum með emax og það var alveg skelfilegt til að byrja með, gátum aldrei tengst og hraðinn var enginn. Ég hringdi bara í þá á fimmtudagskvöldi og kvartaði og um hádegi á föstudegi kom maður frá þeim og fór yfir uppsetninguna á netinu og það hefur bara verið fínt síðan þá. Hraðinn er auðvitað ekki ADSL hraði en alveg nóg til að maður verði ekki brjálaður.

19.01.07 15:42


Lísbet:

Hæ sæta !
Fórstu heim til mín í leiðinni?
Mamma fer að nota þetta sjálf ef þú ferð ekki að láta sjá þig ;)
Koss og knúsar frá Laugarveginum :*

20.01.07 21:57


baddy:

ég fæ grænar bólur þegar minnst er á emax!! komst ekki á netið nánast öll jólin, þrátt fyrir að vera tengd!!! arg ég var að verða geðveikt, svo nottlega allt lokað yfir hátíðirnar, en eftir jól hringdi ég sko og kvartaði í hvert skipti sem netið var eitthvað leiðinlegt og það endaði með því að óli talaði við gaurinn og gerði "ping" í tölvunni og sendi það til þeirra ásamt harðorða bréfi. það skánaði nú aðeins við þetta en samt var eitthvað klikk um daginn þegar ég fór heim! alveg hreint ömurlegt!!

21.01.07 02:32


baddy:

já gleymdi: ekkert að þakka varðandi earl þættina, ég verð komin með nokkra í viðbót handa ykkur þegar ég kem aftur norður...búin að horfa á þrjá og þeir eru bara fyndnir!!

21.01.07 02:35


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín