Mánudagur 04. desember 2006 / 01:53 / Skemmtileg helgi
Eins og venjulega var þessi helgi sem er senn að ljúka, mjög skemmtileg. Á föstudaginn fórum við Dóra og fengum okkur gervineglur á einhverri víetnamískri naglastofu. Það var strákur sem heitir Thai sem gerði mínar neglur og tók það hann 40 mínútur!!! Ég hef aldrei vitað annað eins. Geðveikt fljótur og þær eru mjög flottar! Setti svona fallega bleikt naglalakk á þær - algjör gella ;)
Eftir hádegið á föstudeginum fórum við í vínsmökkun í þremur víngerðum hérna. Það var alveg rosalega gott og kom ég heim með tvær dessert-vínflöskur sem einhverjir velvaldir fá að smakka um jólin ;)
Á laugardaginn gengum við í kringum Atascadero-lake sem er lítið vatn með fullt fullt af fallegum risastórum húsum. Þau voru öll skreytt gríðarlega og útum allt voru kórar að syngja og fólk að bjóða smákökur og heitt kakó. Ótrúlega rómantísk ganga með kertaluktum meðfram göngustígnum. Tókum nokkrar myndir en útaf því hversu lélegt netið er hérna þá getum við ekki sett neinar myndir inn :( Stundum komumst við ekki á netið heilu dagana þannig að þið verðið bara að fyrirgefa ef það líður langt á milli blogga og við sjáumst lítið á skype/msn...
Í dag var svo home-tour dæmi í gangi hjá skólanum hjá Thor. Hann er í kaþólskum einkaskóla og þetta er ein af fjáröflunum hjá þeim, að einhverjar 4 fjölskyldur opna húsið sitt fyrstu helgina í desember og þar eru seldir ýmsir varningar og fleira. Við skoðuðum öll húsin 4 og voru þau hvert öðru flottara! Eitt var með þreföldum bílskúr, og þar var bmw parkeraður og porsche á svona bílalyftu fyrir ofan BMW-inn! Þarna var líka studio og fullt af hljóðfærum. Geðveiki alveg hreint en rosalega gaman að sjá þetta.
Núna er eiginlega allur vindur úr okkur því maður skrifar aldrei allt sem maður gerir hingað inn og oftast eru inní dagskránni hjá manni leikir með krökkunum og tiltekt/þvottur/eldhúsþrif...
---
Gleðifréttir samt! Allavega fyrir okkur. Ása hefur ákveðið að taka í gegn aðra íbúð og ætlar að gera það á með tíma! eða rétt um viku. Við verðum semsagt að vinna núna í næstu viku (frá og með morgundeginum) í íbúðinni frá morgni til kvölds og fáum mange mange penge fyrir! :D Snilld snilld. Hinsvegar slæmar fréttir fyrir ykkur eru þær að þetta þýðir ennþá minni tími á netinu, en ég blogga samt um leið og ég hef tíma til að setjast niður og slappensíaf ;)
---
Við heyrðum í Eddu systir Þorsteins um daginn sem sagði okkur að þau í Melgötunni ætla að gera laufarbrauð núna á föstudaginn! Hér með leggjum við inn þessa stafi:
H fyrir Hanna
J fyrir Jóhanna
A fyrir Ameríka
Þ fyrir Þorsteinn
F fyrir Forgarður
og að sjálfsögðu
M fyrir MORGENROTH! :D
---
Hans og Stephanie eru í mat í kvöld (Hans er bróðir Dóru) og það er núna steik og kjúlli á grillinu. Nammi namm
Auðvitað erum við með rauðvínsglas í hönd enda erum við orðin háð rauðvíni ;) Orðnir algjörir rauðvíns-meistarar! :D
Best að fara að hjálpa til í eldhúsinu!
Loads of love
Hannah
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
Æi smá kósí að fá heitt kakó og smákökur!
Magnað alveg að fá svona vinnu á lokasprettinum! Já ég sagði LOKAsprettinum :) Það styttist í að maður sér ykkur! :)
Við Elísabeth ákváðum í gærkvöldi að ég myndi sækja hana snemma í leikskólann í dag og við myndum baka piparkökur! Hún tilkynnti mér svo í morgun að ég ætti að biðja pabba hennar og ömmu Hóffu að sækja sig.
Ég bara, já en æltuðum við ekki að baka??
Og þá sagði hún: Ég get sko alveg bakað piparkökur á Grenivík.
Hana nú !
Jæja hafðu það gott og gangi þér vel í vinnunni Bið að heilsa Þ ;)
06.12.06 09:55
snilld... ég get ekki beðið eftir að fá ykkur heim!!
awesome!
06.12.06 23:03



