Föstudagur 01. desember 2006 / 02:03 / Planið fyrir helgina

Við Þorsteinn sváfum leeengi í morgun. Reyndar vaknaði ég á eftir Þorsteini, þá var hann kominn framúr og var að horfa á "Walker, Texas Ranger" með stórleikaranum Chuck Norris. Ég vaknaði við hlátrarsköllin :)
Við fórum í dag og versluðum tvær jólagjafir. Reyndar keyptum við eiginlega 4 jólagjafir svona þegar ég hugsa betur útí þetta. Úff allar þessar verslunarferðir eru farnar að renna í eina móðu hehe
Þorsteinn keypti sér geggjaða Hurley skó, en ég keypti mér vetrar-bomsur (í staðin fyrir vetrar"dekkin" mín gömlu ljótu) á 20dolls, eða 1400kr! Þvílík snilld að versla skó hérna.. ég kem örugglega heim með fulla ferðatösku af SKÓÓÓM! :D
Í gær voru sendir af stað 6 kassar (sem reyndar voru settir í tvo stærri kassa þannig að þetta eru bara tveir kassar núna) til Grenivíkur. Þeir ættu að koma í næstu viku eða þarnæstu viku. Vil bara beina þeim tilmælum til Melgötuliðsins að ÞESSA KASSA MÁ EKKI OPNA! Þeir innihalda sprengjuefni og skordýr... og nokkrar jólagjafir! ;D
Endilega skellið þeim bara beint ofan í kjallara og leyfið þeim að bíða rólegum þar til við mætum á svæðið!
--
Plönin fyrir helgina eru loksins orðin skýr. Á morgun förum við í vínsmökkun með Dóru og Eric og fáum að smakka gæða rauðvín og hvítvín sem koma frá hinum fjölmörgu vínekrum í nágrenni San Luis Obispo (SLO).
Um kvöldmatarleytið er svo skrúðganga niður í bæ, þar sem Emma verður með fimleikaliðinu sínu og Thor með skátaliðinu sínu á svona "float" eða einhverskonar kerru sem rennur ljúflega í gegnum miðbæinn. Þetta er allt saman í tilefni jólanna, að sjálfsögðu ;)
Laugardagurinn er svo stútfullur þar sem Eric og Þorsteinn ætla að byrja daginn snemma á því að hjálpa Hans að höggva niður eitt stykki tré í eldivið. Síðan ætlum við Dóra að mæta á svæðið og halda smá "partý" heima hjá Hans og Stephanie og um kvöldm.leytið er "walk around the lake"... hef eiginlega ekki hugmynd hvaða vatn á að ganga í kringum. Kannski göngum við öll Á vatninu svona í tilefni jólanna. Hvur veit.
Um kvöldið fara svo Dóra og Eric í eitthvað vinnu-jóla-partý til yfirmanns Dóru og við Steini ætlum að passa ljúflingana á meðan. Við ætlum að fylla þau af poppi, glápa á sjónvarpið og halda á þeim örþreyttum inní rúm! :D Magnað!
Á sunnudaginn fer Dóra svo að vinna í einhverju "opnu húsi" fyrir skólann hans Thors. Hann er í mjög góðum kaþólskum einkaskóla og fer í skólabúning í skólann á hverjum degi - ekkert smá sætur! ;)
Eftir hádegi á sunnudeginum, þegar Dóra er búin að vinna, förum við Dóra ásamt fleirum að skoða þessi opnu hús (þetta virkar þannig að það eru 4 opin hús, hús foreldra eða ömmu og afa krakka sem eru í skólanum með Thor. Í fyrra var t.d. Dóra með opið hús! Þetta eru hús sem eiga sér langa sögu, eru sérstök að einhverju leyti eða bara fáránlega flott! Húsin eru öll skreytt fyrir jólin af atvinnu-skreyturum og inní þeim eru svo seldir allskonar varningar, jólabrauð, skartgripir ofl skemmtilegt. Þetta er semsagt eins og 4 litlir markaðir.. heima hjá einhverjum!)
Á Sunnudagskvöldið ætlum við svo að grilla steikur og kjúkling.. nammi namm! :D
Dóra er búin að kenna mér fullt af hlutum að gera í eldhúsinu! T.d. GEÐVEIKT GÓÐ hrísgrjón. nammi namm! Heppnir þeir sem fá að koma í mat til mín eftir áramót ;)
Jæja. Það var verið að kalla "Dinner!" Þorsteinn og Eric fóru niður í bæ og keyptu fullt af Ribs til að borða í kvöld því það er Farmers Market og þá eru alltaf elduð Ribs niður í bæ. Svaka gott.
Elskið friðinn og kyssið á kviðinn
Over AND out!


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.

/ Álit

Bjarney:

Hæ.. bara kvitta hérna og hlakka til þess að sjá þig þegar þið komið hjems.. og þú kíkir vonandi í Húsgögnin Heim fyrir jólin I´ll be there:) working my ass off:) já og ég kíki hérna inn á hverjum og degi og bíð eftir krassandi og upplífgandi bloggi frá þér, alltaf gaman að lesa skrifin þín því þú ert mjög svo góður penni;)

01.12.06 14:56


Ásdís á hauganesi:

hæ elsku dúllan mín ætlaði bara að láta þig vita að ég er ekki dauð og að ég fylgist með þér. múhaha:)

01.12.06 23:11


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín