Mánudagur 25. desember 2006 / 11:35 / Jólin allstaðar!
Takk allir kærlega fyrir mig!!
Við fengum svo mikið af góðum og fallegum gjöfum að ég nenni varla að telja það allt upp.
Tvær stærstu gjafirnar voru samt tvíbreið sæng frá mömmu og pabba og gríðarlegt matarstell frá Tengdó!
Svo voru auðvitað fullt fullt af fleiri pökkum
Takk allir... þessi jól voru frábær! Utan við það að ég er með bullandi kvef, beinverki og svo ældi ég rjúpunum í nótt ;S Þetta kennir mér bara að borða ekki svona mikið hehehe. Nei nei, ég borðaði nú ekki það mikið, bara með einhverja bölvaða pest. Ég er að fara að taka okkur Nick til og svo ætlum við að drífa okkur til Grensó. Það er jólaboð í Melgötunni svo maður verður nú að drífa sig til að ná í einhverja kökuafganga! Nehh ég ætla reyndar örugglega ekki að mæta þangað því ég vil helst bara leggjast undir nýju sængina mína þangað til í kvöld, því þá fer ég að vinna! Jább kellan á að mæta á Grenilund kl 7 í kvöld! Fussumsvei.. fyrsti "vinnu"dagurinn minn í 6 mánuði!
Læt ykkur vita hvernig fer ;)
Takk enn og aftur
Jólakveðja frá Hauganesi
Jókaspóka
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.
/ Álit
bíddu bíddu, Grenilundur...hvaða hvaða maður má ekki bregða sér í burtu í smá tíma þá bara breytast öll plön....hvenær byrjaðiru að vinna þar!! ætlaru að vinna þar með leikskólanum...elsku kellan mín sem þarf alltaf að vera í helst 3 vinnum til að hafa alveg örugglega nóg að gera....miss u a lot
kv. Helga og Dagur sí veiki
28.12.06 20:22



