Laugardagur 23. desember 2006 / 17:40 / Gleðileg jól!!!
Það er nú meira ástandið sem ríkir á heimilinu mínu þessa dagana. Ég er ekki með internet! Þetta er alveg svakalegt og er ég að drepast úr þunglyndi yfir þessu! :S Nei nei þetta er nú ekki alveg svo slæmt, en samt ömurlegt! Maður áttar sig ekki á því hvað maður notar internetið alveg svakalega mikið. Ég er nú samt búin að hringja í emax og sækja um netið og ætti að fá það einhverntíman í Janúar.. örugglega endan á janúar, en það er allt í lagi! ;)
Núna er ég bara heima á Hauganesi að njóta þess að vera í faðmi fjölskyldunnar minnar yndislegu. Dagný, Óli og Daníel eru hérna (þau eru búsett í DK) og Baddý systir er auðvitað hérna líka. Á morgun verðum við 9 við veisluborðið og langt síðan við höfum verið svona mörg saman.. eða öll! Eiginlega verðum við 10 þar sem Sandra hans Ragga bróðurs er ólétt og borðar fyrir tvo ;) Hún á að eiga í mars þannig að það verður fjör næstu jól!
Annars er Þorsteinn heima á Grenivík og ég og Nick erum útá Hauganesi. Það er fínt að fá smá pásu hvort frá öðru svona þegar við erum nýbúin að vera saman í 6 mánuði... 24/7!! ;) Þú ert samt alveg ágætur elskan.. :)
Í gær var árgangamót í Árskógarskóla og það var ekkert SMÁ gaman. Enda er líðan eftir því hehe
Takk allir sem komu þetta var ógleymanlegt! :D
Jæja. Best að fara að fá sér eitthvað í gogginn.
Þessi færsla er skráð í flokknum



