Sunnudagur 26. nóvember 2006 / 05:51 / Útsölur

Föstudagsnóttin var ansi viðburðarrík!
Eins og ég sagði frá í síðasta bloggi þá var stefnan tekin á útsölur snemma um morguninn/seint um nóttina daginn eftir. Við stóðum að sjálfsögðu við stóru orðin og vorum vöknuð kl 4 um nóttina!
Við byrjuðum í Gottschalks sem opnaði kl 5 og þar var ágætis röð við alla 3 inngangina. Hinsvegar í BestBuy (Ameríska BT) var röð nánast í kringum bygginguna!!! Bílaplanið fullt af bílum..
Við fórum svo í Target sem opnaði kl 6 (við vorum með vel skipulagðan og útpældann innkaupalista með tímasetningum á öllu.. híhí.. algjörir ameríkanar) og þar var lööönng röð. Við vorum reyndar svo dónaleg að smeygja okkur inn með fremsta fólkinu (HEY THEY ARE CUTTING THE LINEE!!! var öskrað á eftir okkur.. við lokuðum bara eyrunum.. algjörir svindlarar!) og pössuðum okkur svo að verða ekki undir þegar fólk ruddist af stað.. hljóp eins og brjálæðingar með körfurnar á undan sér og greip allt sem var á útsölu og helst tvennt af öllu! Þetta var það rosalegasta sem ég hef séð lengi! Hehehe Ekkert smá gaman og mikil stemming að vakna svona snemma og fara að versla. Kl 9 vorum við búin að versla allar jólagjafirnar (átti bara um 9 eftir) og fengum okkur Starbucks og fórum heim!

Snilldardagur. Vildi óska að ég hefði verið með videocameru og tekið þetta upp. Þetta var svo eitthvað bíomyndalegt! Fólk að slást um hluti.. öskrandi og tætandi úr hillunum.. algjör brandari. Hefði sko verið gaman að sýna ykkur.
Ég fór með myndavélina með, en kunni ekki við að láta sjást flass úr bílnum okkar þegar við keyrðum framhjá búðunum! Hefði verið frekar túristalegt ;)

Í dag var svo verslað RISASTÓRT jólatré! Við Eric söguðum smá neðan af því (opna svo það "drekki nú vatn") og reistum það við inní stofu. Við skreyttum það svo í kvöld og hlustðum á jólalög! Mikið verður ótrúlega gaman að koma heim beinustu leið í jólastemminguna! Getum varla beðið!!!

Í kvöld gerðum við svona smá tilraunar-pakk og pökkuðum öllu sem við erum komin með (búin að kaupa og svoleiðis) og er staðan í dag 3 stórar ferðatöskur og 3 litlar. Ekki svo slæmt finnst mér! ;) Þá er bara að halda aftur af sér þangað 18.des! :D Úff það verður erfitt.. en með Þorstein mér við hlið þá hlýtur það að hafast.

Jæja. Þessi dagur er búinn að vera langur, en skemmtilegur. Ætli það sé ekki best að fara að koma sér í bólið. Ekki það að það sé neitt sérstakt planað á morgun. Reyndar ætlum við að fara að sjá Happy Feet með krökkunum (Thor og Emmu) og svo ætlar Eric að leyfa mér að keyra Porsche-inn sinn! Það verður örugglega GEGGJAÐ gaman ;)
Læt vita hvort ég velti honum/klessi á! ;)
Góða nótt, sofið rótt í alla nótt... guð geymi ykkur og dreymi ykkur vel!

Þessi færsla er skráð í flokknum kaupæði. Þar eru 1 færslur.

/ Álit

freyja:

Þetta hefur verið frábær upplifun.... það er svo gaman að sjá svona geðveiki í innkaupum..... Ég sá einu sinni eitthvað sem komst í líkingu við þetta..... Ven I vos In Germany.. þá var ég send einn morguninn í stóra "bónus" búð í svona hálftíma fjarlægð.. var með góðan innkaupalista og til í slaginn...brunaði vel merktu göturnar og fann búðina auðveldlega.... ég tók nú eftir því að það bílastæðin voru vel nýtt.... en ég arkaði inn og við blasti brjálæði. Ég hef líklegast verið langyngst þarna inni... þarna voru ellilífeyrisþegar að stútfylla körfurnar sínar af því sem var þann dag á tilboði. Skondið að sjá áttræðann mann með ca 20 poka af hrísgrjónum og ca 50 dósir af niðursoðnum túnfiski... og ekkert meira.....

Eftir að hafa barist við eldra fólkið og náð að pota því í körfuna sem var á listanum, náði ég að komast út í bíl og sór þess eið að fara aldrei í þessa verlsun aftur. Þegar ég kom heim og lýsti atburðum... þá áttaði frúin á heimilinu sig á því að það var miðvikudagur og baðst afsökuna. Í gervöllu Þýskalandi kemur út tilboðsblað frá þessarri verslun í hverri viku og þá fara sparsamir þjóðverjar á stjá. Viti menn.... þessa vikuna var túnfiskur hræódýr sem og grjónin góðu. Jede Woche er þetta svona..... þá var nú gott að komast í rólegu hverfisverlunina þar sem 40 kona sat alvarleg við kassann og gældi við "sítt að aftanið" sitt..... þá var það ekki í tísku..

Hlakka til að fá ykkur heim ;)

26.11.06 13:35

26.11.06 13:36

freyja:

já, ég vildi sem sagt ekki að neinn myndi missa af þessari sögu minni svo að ég setti hana inn tvisvar.... sjaldan er góð vísa of oft kveðin segja þeir... það á kannski við núna?

26.11.06 13:39

hanna:

Já ég las hana sko tvisvar til að vera viss um að missa ekki af neinu! :D
Hehe

26.11.06 18:20

Sandra:

Hi Hanna, ertu búin að fara í Victora´s Secret fyrir mig? Hlakka svo til að hitta ykkur um jólin og heyra allar sögur frá USA. Kveðja frá svíaríki. Sandra & co. :)

26.11.06 18:50

Aníka óþolinmóða:

hehe... djöfull sé ég þetta fyrir mér! hehehe...

Annars er ég bara að kommenta! :D hef EKKERT að segja! :D

28.11.06 00:16

© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín