Föstudagur 24. nóvember 2006 / 04:58 / Thanksgiving

Hérna sitjum við Þorsteinn með bumbuna útí loftið. Úff þetta var allsvakalegur át-dagur! Byrjaði létt með nokkrum forréttum UM EITTLEYTIÐ þegar gestirnir komu í hús. Rækjusalat ala Hanna (sem þeim fannst mjög merkilegt og gott), spínat-ídýfa sem var furðulega góð og bruchetta brauð sem Stephanie kom með. Allt saman mjög gott.. svo auðvitað voru súkkulaðirúsinur svona í bland ;)
Nú, um 4 leytið var Kalkúninn svo tilbúinn og þá hófst hin mikla átveisla. Shit hvað við borðuðum mikið. Í eftirrétt var svo flottasta karamellukaka sem ég hef augum litið. RISASTÓR og svo sæt að ég ældi næstum því eftir svona 4 bita og þambaði vatn! Það voru samt 3 aðrar kökur að velja um.. þannig að engar áhyggjur, ég þurfti ekkert að svelta! Hehe
Núna er kl 9 og manni líður eins og hún sé miðnætti þar sem kvöldmaturinn var borðaður svo snemma.
Á morgun eru svo ROSALEGAR útsölur hérna. Í dag kom FULLUR POKI af auglýsingarbæklingum. Við erum búin að renna í gegnum þá flesta og ætlum að reyna að versla afganginn af jólagjöfunum á morgun. Við ætlum semsagt að vakna kl 4 í nótt og vera mætt fyrir utan Gottschalk kl 5 til að ná því þegar það er opnað. Auðvitað verð ég með myndavélina með mér og tek myndir af brjáluðu Ameríkönunum sem bíða í ofvænu eftir því að hurðirnar opnist.
Síðan er stefnan tekin á Bed, Bath and Beyond og svo Target! Úff þetta verður langur dagur! Híhí
Eftir það ætlum við að mála fyrir Ásu og sofnum örugglega MJÖG þreytt annað kvöld.
----
Annars fengum við video sent frá geðveiku fjölskyldunni í Lækjarvöllum tvö! Ekkert smá gaman að horfa á það. Fengum alveg sting í magann af heimþrá. Hlógum ekkert smá mikið, enda er Sissinn ekkert smá góður myndasmiður! Á meðan við horfðum smjöttuðum við á möndlum og Þorsteinn fékk sér Draum. Takk kærlega fyrir!! Ég er líka búin að lesa Dagskránna og Extra í bak og fyrir og rak þar augun í tvo nýja skemmtistaði á Akureyri og einn nýjan veitingarstað!!! Það munar ekkert um það! Þetta er alveg svakalegt. Maður má ekki fara í burtu í nokkra mánuði án þess að hlutirnir breytist þvílíkt. Það vakti líka mikla lukku að sjá Sviðakjamma auglýsta frá Nettó! ;)
Takk KÆRLEGA Edda og Sissi fyrir frábært Video og æðislega sendingu! Gladdi okkur ekkert smá.
Það eina sem ég hef útá þetta að setja er að eftir að við settum diskinn í tölvuna, þá er hún búin að fyllast af vírusum!! Ef einhver veit um góða leið til að eyða út spyware og trojan þá má sá hinn sami ENDILEGA benda okkur á eitthvað forrit í Kommentunum, og ég mæli með því að þú, Edda, náir þér líka í eitthvað forrit og rennir því í gegnum tölvuna hjá þér. Veit ekki hvernig þetta virkar en held að þetta hafi komið af disknum þínum.. ef það er mögulegt...
Jæja. Best að fara að skríða í bólið svo maður nái nú einhverjum svefni fyrir verslunardaginn mikla!
Edda - Er búið að kaupa gjöf handa honum föður þínum? Við Þorsteinn ætlum nefninlega að fjárfesta í einu atriði á morgun til að gefa honum. Ef hinsvegar er búið að kaupa eitthvað handa honum þá erum við alveg til í að eiga þetta bara sjálf ;) ;D
Enda þetta á nokkrum myndum frá kvöldinu í kvöld. Það er svo erfitt að setja inn myndir á myndasíðuna svo þið fáið bara að sjá fullt af myndum þegar við komum heim!
Tilly and thanksgiving 096.jpg
Svona klippti Anthony mig fínt á mánudagskvöldið. Sorry mamma,.. enþá dökkhærð! :D
Tilly and thanksgiving 097.jpg
Svona er ég sæt á hlið ;) Hárið á mér er samt síðara aftan á. Ég náði bara ekki góðri mynd af því :S
Tilly and thanksgiving 102.jpg
Fallega skreyta veisluborðið okkar Dóru. Já og Steini...
Tilly and thanksgiving 095.jpg
Fallegi Kalkúninn áður en við skelltum honum í ofninn...
Tilly and thanksgiving 115.jpg
...kominn útúr ofninum! Steina leist vel á hann! Gunni - Þessi mynd er tileinkuð þér!
Tilly and thanksgiving 109.jpg
Mhh þessi var góð.. en sykruð!! Oh man..fæ bara í magann af því að horfa á hana..

Enda þetta á mynd af okkur skötuhjúum
Tilly and thanksgiving 120.jpg


Farin að sofa! :D


Þessi færsla er skráð í flokknum heimilið. Þar eru 25 færslur.

/ Álit

Linda i Sverige:

Tveir nýjir skemmtistaðir og eitt veitingahús .. bara bullandi uppsveifla á AK City! ;) Hanna við kíkjum á þetta þegar við komum heim? og tökum Helgu með okkur? :D 20 dagar þangað til að ég fer heim .. get ekki beðið!

24.11.06 10:48


BI:

Hér finnurðu ókeypis vírurvörn, AVG Free Edition:

http://www.grisoft.com
á gráu röndinni vinstra megin.

Þessa er ég með í minni tölvu og hún virkar. Hún leitar á hverjum morgni kl. 8 og grandskoðar allt í um 40 mínútur og gefur síðan út tilkynningu um að enginn vírus hafi fundist.
Einu sinni fékk ég Trójuhest með einhverjum hálfvitapósti og AVG hakkaði hann í sig. Auk þess uppfærir hún sig skilmerkilega á hverjum einasta degi. (Hún af því að hún heitir örugglega fullu nafni Anna Vilfríður Guðjónsdóttir)
Ég sendi þetta í tölvupósti í morgun en fékk í hausinn aftur. Miss Reykjalin virðist hafa orðið eftir hjá Morgunnroðanum

24.11.06 11:54


Edda:

Halló
Pakkinn var líka úr Lækjarvöllum 10 :)
Raggi græjaði diskinn fyrir okkur þannig að kannski var þetta úr hans tölvu :/
Blesssssssss
P.s. Olla bolla er farin að hlakka gríðarlega til að hitta ykkur!

24.11.06 18:55


Hófý:

rosalega girnilegur matur þarna hjá ykkur :) maður verður bara svangur á að sjá þetta, annar er maður alltaf svangur í þessu ástandi :D

Vonandi sé ég þig þegar þú kemur heim

25.11.06 10:56


Aníka:

oh, færðu ekki uppskriftina af þessari karmelluköku.. ég er einhvernveginn alveg til í að smakka hana :D

En annars er ég bara að kíkja á þig :D hafið það sem allra best það sem eftir er af þessu ævintýri! :D

kv.
Aníka

p.s. ég sendi þér e-mail áðan, endilega láttu mig vita ef þú færð hann :D

25.11.06 20:48


Helga:

hæ váá hvað ég væri til í að vera með ykkur þarna úti....og get ekki beðið eftri að fá ykkur heim. Verð búin með þesssi pipp pipp pipp pipp próf og get farið að slaka á. Við hittumst nú örugglega ekki mikið fyrr en við komum heim frá Nesk þó, en það verður bara að hafa það, ég þarf nebbla að passa fyrir Elvu systu þegar prófin eru búin og fram að jólum. En ég er með gríðarlegann höfuðverk því ég veit ekki hvað ég á að gefa ykkur í jólagjöf...;( hugmyndir eru vel þegnar

jæja ætla að fara að halda áfram að læra.... miss u a lot

26.11.06 10:18


Helga:

hæ váá hvað ég væri til í að vera með ykkur þarna úti....og get ekki beðið eftri að fá ykkur heim. Verð búin með þesssi pipp pipp pipp pipp próf og get farið að slaka á. Við hittumst nú örugglega ekki mikið fyrr en við komum heim frá Nesk þó, en það verður bara að hafa það, ég þarf nebbla að passa fyrir Elvu systu þegar prófin eru búin og fram að jólum. En ég er með gríðarlegann höfuðverk því ég veit ekki hvað ég á að gefa ykkur í jólagjöf...;( hugmyndir eru vel þegnar

jæja ætla að fara að halda áfram að læra.... miss u a lot

26.11.06 10:25


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín