Miðvikudagur 08. nóvember 2006 / 04:58 / Ó ljúfa líííf...

Við erum búin að vera GEÐVEIKT dugleg undanfarna 2 daga. Við máluðum allt grindverkið fyrir Ásu á tveimur dögum! Það hefur yfirleitt tekið hana svona 2 vikur að gera það sjálf þannig að við höfum svo sannarlega sparað henni vinnu og tíma :)
Núna erum við bara að plana einhver skemmtileg-heit. T.d. ætlum við til Las Vegas núna í næstu viku. Leigja okkur blæjubíl (það er mun ódýrara en að fljúiga) og keyra þangað. Það er reyndar 6 tíma keyrsla, en við verðum bara dugleg að stoppa og þá verður það fínt. Síðan ætlum við bara að finna okkur ódýrasta hótel í Vegas og gista þar (hey, ætlum nú ekki að eyða Vegas-ferðinni okkar inná hótelherbergi!). Planið er svo að keyra til Grand Canyon og koma við í Hoover-stíflunni. Það er víst svona 3-4tíma akstur til Grand Canyon þannig að það ætti að vera fínt.
Við erum líka orðin svakalega spennt fyrir því að koma heim! Jibbííí það verður svooo gaman.
Fyrir þá sem ekki vita þá er ég búin að fá vinnu í leikskólanum á Grenivík og við erum líka komin með íbúð þar!! Jább. Melgata 4a verður heimilið okkar.. allavega þangað til næsta haust! Þorsteinn ætlar að reyna að fá aftur vinnu hjá ISS og verður þá að vinna næturvinnu :( En það er allt í lagi því hann fær mikinn pening ef hann verður fastráðinn! :D
Íbúðin "okkar" á Grensó er 4ra herbergja = þrjú svefnherbergi! Þannig að allir sem vilja eyða góðri helgi á Grensó eru velkomnir til okkar :D
Það verða örugglega haldin MÖRG matar/gistiboð hjá okkur í vetur og næsta vor! Svo er þetta auðvitað íbúð á JARÐHÆÐ þannig að ekki lengur margir margir stigar upp til okkar (Lína og co frá mývatnssveit geta semsagt heimsótt okkur oft oft, Jibbí!) og hún er með GARÐI sem er algjör draumur fyrir mig og Þorstein.
Jæja. Ég ætla að halda áfram að sörfa netið eftir hótelum í Vegas ;)
Kveðja frá sælureitnum, San Luis Obispo.
Hanna
p.s. Baddý... mig vantar: Meik, andlitskrem, body lotion, mascara (eru þeir ekki frekar slæmir þegar þeir eru orðnir 2ja ára annars?), augnskugga, sólarpúður, gloss, eye-liner....and so the list goes ooooonnnn :D


Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 170 færslur.

/ Álit

Nanna:

Halló nafna mín ;) Ég er að rifna úr öfundsýki hérna hinumegin ! Mig langar mest í heimi að fara til USA og hvað þá til Las Vegas ! Vertu dugleg að taka myndir ;) Hafið það gott !!!

08.11.06 13:45


Helga Kr.:

Til hamingju með allt og þá sérstaklega með að vera að flytja á Grensó ! Krummsi er frábær vinnustaður, þér ætti alls ekki að leiðast þar :) Góða skemmtun í Vegas beibí :)

08.11.06 14:36


Valgerður:

Hæhæ Hanna Lína :) kíki annað slagið eftir að þú sendir mér slóðina, til hamingju með vinnuna á Grenó! Svo er það bara Vegas og blæjubíll, gerist varla betra, spennó ;)

Hafðu það gott,
Valgerður

08.11.06 18:25


Guðný:

hæ sæta, gott að heyra að hvað það er gaman hjá ykkur og ég öfunda ykkur dauðans til að vera að fara í road trip á blæjubíl til vegas! I've always wanted to do that! :)

08.11.06 20:16


Linda i Sverige:

Bara snilld ... ekki slæmt að krúsa um Las Vegas í blæjubíl .. mín er bara að fara til Stokkhólms á morgun að hitta múttu og Steffí og Dagný, það er sko kreisí verslunarhelgi framundan! hafðu það nú gott sæta mín .. puss och kram ;)

08.11.06 23:51


Aníka:

Geggjað, geggjað, og meira geggjað!!!!

Frábært að allt sé komið á hreint hjá ykkur elskurnar mínar!! hlakka ekkert smá til að fá ykkur heim :D

skemmtið ykkur í VEGAS og ekki spila af ykkur allt! hehe.. :D

knús!

09.11.06 01:38


Sigrún J:

Æjiiii.... vá smá geggjað!
Um að gera að gera þetta með stæl!
Hlakka rosalega til að sjá ykkur. Kósí að vera komin með íbúð útá Grenó og vinnu og allt. Alveg frábært að koma heim og vera með "allt klárt" ;)

Hafið það gott og góða skemmtun í Vegas!
Bið að heilsa Steina og Gunna ;)

09.11.06 19:54


Valgerður Inga:

Hæhæ :)

Hafið það gott úti og bið að heilsa Ásu og Dóru og þeim =)

09.11.06 23:04


hkj:

hæ elskan herru ég hef ekki fengið neinar myndir..hmmmm, hétl þú myndir senda þær eins og skot þú varst svo spennt.....og ég líka..hehe!!! allaveganna bíð við póstin eftir að fá þær sæta mín...haltu svo áfram að skemmta þér þarna úti og ekki gleyma myndavélinni....þegar farið verður til Las Vegas...baby
spilar einn leik fyrir mig...mig langar í svona hmmmmmm 200 millur, deal.....(K)

10.11.06 13:42


Adda:

hehe..maskarin ætti að vera orðinn ansi slappur þar sem að maður á víst að skipta út á 3mán fresti hehe...til hammó með íbúðina og vinnuna, við kíkjum i kaffi..nú eða eitthvað sterkara ;)
annars bara knús og ég hlakka til að sjá þig um jólin :*

10.11.06 15:48


Víddi Jóns:

Gott að ykkur líður vel:) En gaman að kommenta hjá ykkur þegar að manni er svo ekkert svarað" "Bíddu, ég stóð í þeirri meiningu að morgunroðinn væri fínn, ertu ekki búin að vera að tala þannig? Hawai brúðkaup og læti. En þetta fólk sem að þið eruð að fara til núna, er það fólk sem að þið kynntust úti? Hvað sagði morgunroðinn við því að þið væruð að fara??":)

11.11.06 00:03


Víddi Jóns:

Frábært að kommenta hjjá þér...

16.11.06 09:32


© 2001-2008 Jóhanna Reykjalín