Laugardagur 11. nóvember 2006 / 21:40 / Ýmisleg málefni
Eftir mikla umræðu hjá okkur Þorsteini var sú erfiða ákvörðun tekin um að koma ekki til Íslands um jólin. Við ætlum hinsvegar að eyða þeim hérna hjá Dóru og Eric og koma heim eftir áramót.
-----
DJÓÓÓK! :) Stoppaði hjartað? Fékkstu í magann? Múhahah
En það var hinsvegar tekin erfið ákvörðun hérna fyrir helgi. Við ákváðum nefninlega að fara ekki til Las Vegas :(
Við ákváðum þess í stað að spara peninga og gefa öllum geðveikt stóra jólagjöf uppá fáránlega háa upphæð! Nehh aftur djók. Við ætlum að njóta þess að eiga hugsanlega smáá pening þegar við komum heim - eða allavega ekki háar skuldir.
Við erum búin að vera að skoða bíla á netinu. Þurfum víst að fá okkur einhvern góðan og fjórhjóladrifin... Svona ef Þorsteinn ætlar að keyra á milli þá vil ég nú að hann komist heim eftir vinnu! :)
---
Það er búið að vera svakalega gaman hérna í SLO. Við erum vakin með gríðarlegum fagnaðarlátum á hverjum morgni. Helst vilja krakkarnir nú vekja okkur svona um 6 leytið en Dóra nær að halda aftur af þeim til svona 8 ;) Það er fínt.
Þau eru alveg upptjúnnuð að hafa okkur hérna en eru svona aðeins farin að róast.
Þorsteinn og Gunni settu inn myndband á forgarðs-síðuna sem þið skuluð endilega kíkja á. Ef þið sjáið þá ekki fljúga af blöðrunni þá verðið þið bara að gera "refresh" og reyna aftur.
Ég ætla svo að fara að vinna í því að koma inn myndum. Við erum eiginlega að "stelast" á netið hjá einhverjum nágranna sem er með unsecure-wireless network og við erum alltaf að detta út. Ekki gaman að hlaða inn myndum í svoleiðis ástandi.
---
Jæja. Ég læt þetta nægja í bili. Ég læt vita ef að ég kem inn einhverjum myndum!
Þessi færsla er skráð í flokknum Lífið. Þar eru 174 færslur.
/ Álit
við bara skreppum í heimsókn til dóru og erics fjótlega og förum öll (ss ég með) til LasVegas og skoðum allt þar í kring;)
myndbandið er mjög fyndið...sérstaklega þegar ég fattaði hvenær það var sem þeir skutust af tuðrunni...það eru sko sæti í henni þannig að það virðist sem þeir séu enn á! en þeir flúga af rétt eftir ölduna og rétt áður en hanna sys fer að hlæja;)
12.11.06 13:39
hkj:
váá´ég þurfti að lesa fyrstu setningu 3 til þess að skilja hana (vilja skilja hana), shit mitt hjarta stoppaði!!
úff veit ekk hvað ég á að segja annað en hlakka til að sjá þig sæta mín
kv. Helga og Dagur sem er farin að "labba"
13.11.06 15:11



