Fimmtudagur 02. nóvember 2006 / 23:49 / lengsta vika lífs míns
Þessi vika er búin að vera svo ógeðslega lengi að líða að það er ekki venjulegt. Við hreinlega getum ekki beðið eftir því að FARA! -- Áður en lengra er haldið þá vil ég þakka kærlega fyrir kommentin. Æðislegt að heyra hvað það eru margir sem hughreysta mann þegar maður þarf á því að halda.
Já og Karen, við komum ekkert snemma heim. Það var svo ótrúlega mikið vesen að breyta fluginu okkar síðast, hjá DELTA airlines (rifumst við einhverja flugfélagskonu í tvo tíma síðast!) þannig að við ætlum bara að halda okkur við 17.des og njóta tímans sem eftir er :D --- svo ég haldi nú áfram á neikvæðu nótunum..
Í gær var til dæmis alveg æðislega skemmtilegur dagur eða þannig.
Ég lagði af stað að sækja Tj í skólann klukkan hálf 3, hann er búinn 14:35. Þar beið ég fyrir utan til tíu mín YFIR þrjú, semsagt í hálftíma. Þá var gafst ég upp og var að fara að keyra að ná í Christy, þegar Hróbjarturinn hringir.
"Sæl. það er leiklistaræfing hjá TJ þannig að þú þarft ekki að ná í hann. Christy fór með vinkonu sinni heim þannig að þú mátt ná í hana heim til vinkonar klukkan 4. Já og TJ langar í kók þannig að þú mátt fara að ná í kók handa honum!!"
Á þessari stundu langaði mig að GRENJA! En jæja. Ég fór auðvitað og keypti kók handa gullmolanum og þegar ég kom til baka þá fann ég hann hvergi, hana svaraði ekki símanum og ég labbaði með kók útum alla skólalóðina að leita af honum. Að lokum gafst ég upp og var að fara að keyra í burtu þegar hann hringir. Hann kom svo eftir svona 5 mín og náði í kókið sitt (sagði ekki einu sinni takk!) Þá var klukkan að ganga 4 svo ég fór beint að ná í Christy og beið eftir henni í svona 10mín. Ég kom heim rúmlega 4. Búið að taka mig rúmlega 1 og 1/2 tíma að sækja krakkana í skólann! Ohh hvað ég var pirruð. Sérstaklega þar sem þetta er EKKI í fyrsta skipti sem þetta kemur fyrir.
Já og þegar ég sótti Christy, þá vildi hún endilega fara á IN-N-OUT að fá sér hamborgara og ég sagði bara "ekkert mál" þar sem dagurinn minn var hvort eð er farinn eitthvert útí rassgat.
Ekki á morgun heldur hinn......! :D :D
Þessi færsla er skráð í flokknum Flutningar. Þar eru 22 færslur.
/ Álit
ohhh skil þig.....en í staðin skuliði bara njóta þess á núja staðnum og gera allt sem þið getið til að njóta ykkar.....það er jú einn og hálfur mánuður í að þið komið heim......við erum búnar að bonda svolítið hér á netinu að ég kem örugglega að taka á móti þér og knúsa þig ....híhí.
munið bara að þið eruð að safna minningum í minningabankann ykkar (væmið ;)).
kveðja Karen..
03.11.06 00:34
nýja ekki núja
03.11.06 00:36
Bíddu, ég stóð í þeirri meiningu að morgunroðinn væri fínn, ertu ekki búin að vera að tala þannig? Hawai brúðkaup og læti. En þetta fólk sem að þið eruð að fara til núna, er það fólk sem að þið kynntust úti? Hvað sagði morgunroðinn við því að þið væruð að fara??
03.11.06 09:28
já, þeim er greinilega ekki viðbjargandi..
03.11.06 12:47
Inga:
Hæ Hanna mín,
fylgist alltaf með þér og ekkert smá gaman að lesa bloggin þín. Ákvað bara loksins að kvitta. Þið standið ykkur vel og það er um að gera að koma sér í burtu ef ykkur líður betur með það... Life's short :)
Hafið það sem allra best..
03.11.06 19:05



